Áfengis- og vímuefnavandinn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir að efna til mikilvægrar umræðu um þennan skæða sjúkdóm. Því er til að svara að frá því að áðurnefnd skýrsla kom út fyrir réttu ári hefur heilbrigðisráðuneytið tekið skýra forystu í málaflokknum enda óumdeilt að fíknivandi er fyrst og fremst heilbrigðisvandamál og ég þakka sérstaklega starfsfólki heilbrigðisráðuneytis sem og fráfarandi ráðherra. Starfshópur vinnur nú að heildarstefnu í áfengis- og vímuvörnum sem mun taka til forvarna, meðferðar, eftirfylgni, endurhæfingar og lagaumhverfis. Þá liggur fyrir gagnlegt stöðumat frá erlendum sérfræðingi, dr. Kattau, því glöggt er gests augað. Sjúkratryggingum hefur verið falið að gera nýjan heildarsamning við SÁÁ og fjármagn til viðhaldsmeðferðar við ópíóíðafíkn aukið í 450 meðferðir í stað 90 áður. Þá var SÍ falið að semja um þróun flýtimóttöku þannig að þegar einstaklingur finnur hjá sér hvöt til meðferðar fái hann áheyrn innan 24 tíma þar sem viðeigandi farvegur er ákveðinn. Þá hefur plássum í Krýsuvík verið fjölgað og ég vil nefna frábært nýsköpunarverkefni lækna og lyfjafræðinga, Prescriby, um niðurtröppun, m.a. ópíóíða.
Frú forseti. Þingmaðurinn nefndi fjárþörf vegna fíknivanda en sú greining stendur yfir og ljóst að innviðaskuld er í þessum málaflokki. Ekki er þó hægt að ljúka þeirri greiningu fyrr en áðurnefnd stefnumótun hefur farið fram. Heildarfjármagn sem veitt er í málaflokkinn nú er rúmlega 3,2 milljarðar en betur má ef duga skal. Ég mun því leggja til að í fjáraukalögum á þessu þingi verði að auki veittar 350 milljónir til að styrkja og auka fyrirliggjandi úrræði, til að stytta bið og tryggja að ekki þurfi að koma til sumarlokana, og er ríkisstjórnin einhuga um þetta. Þeir fjármunir muni, með fyrirvara um samþykki Alþingis, renna til SÁÁ, Hlaðgerðarkots, Krísuvíkur, göngudeildar á Landspítala, Laufeyjarteymis, Ylju – neyslurýmis og Frú Ragnheiðar og verður tillaga um skiptingu og nýtingu fjármagns kynnt fljótlega. Þá veitti ég nýlega 9,5 milljónir í styrki af safnliðum í verkefni tengd fíknivanda, m.a. til Rótarinnar, Rauða krossins og Matthildar. Þá var í liðinni viku úthlutað úr lýðheilsusjóði tæpum 27 milljónum, m.a. til Foreldrahúss og til SÁÁ vegna sálfræðiþjónustu barna.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður nefndi skort á upplýsingum. Fyrirhugað er að fela sérstökum stýrihópi sem verið er að skipa þetta verkefni í samvinnu við þá fjölmörgu aðila sem hafa aðgang að mismunandi og viðeigandi gögnum. Ljóst er að umfang vandans er mikið og sem dæmi eru 800–900 manns í þjónustu Frú Ragnheiðar og Ylju. Þá eru 500 manns í viðhaldsmeðferð hjá SÁÁ og þangað leita um 3.200 manns á hverju ári. Þá hefur verið skipaður svokallaður vöktunarhópur sem mun fylgjast með t.d. hvaða efni eru í notkun og upplýsa og vara notendur við eftir aðstæðum.
Fyrir liggur ný skýrsla um heildrænar aðgerðir í skaðaminnkun. Unnið er að því að kostnaðarmeta aðgerðirnar og undirbúningur þegar hafinn að framkvæmd, t.d. tilraunaverkefni um viðhaldsmeðferð með öðrum lyfjum en hafa verið í notkun. Þá mun ég innan skamms mæla fyrir frumvarpi til laga um breytingu á neyslurýmum þannig að heilbrigðisstofnanir og frjáls félagasamtök geti rekið neyslurými og líka að þar megi nú reykja vímuefni.
Virðulegi forseti. Ég hef á þessum stutta tíma tæpt á því helsta. Áfram verður unnið að því að auka aðgengi að þjónustu með því að styrkja þau góðu úrræði sem fyrir eru ásamt því að einfalda og samræma þjónustuferla, auka sveigjanleika í meðferð, en eftir því hefur verið kallað, útvíkka göngudeildarþjónustu og nýta fjarheilbrigðislausnir, sérstaklega fyrir fólk á landsbyggðinni. Eins og heyra má er unnið mjög markvisst í takti við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur þar sem áhersla er á fíkni- og geðheilbrigðismál. Ég sakna þess að hafa ekki lengri tíma til að gera grein fyrir öllum þeim fjölmörgu verkefnum sem unnið er að í ráðuneytinu en læt staðar numið að sinni.