156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

Áfengis- og vímuefnavandinn.

[11:21]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir þessa mikilvægu umræðu. Segja má nokkurn veginn fyrir víst að sérhver einstaklingur þekkir til þessa sjúkdóms, hvort sem hann glímir við hann sjálfur eða hefur kynnst honum hjá öðrum, svo sem ættingjum eða vinum. Ekki hefur verið nægilega vel haldið utan um þessi mál hjá síðustu ríkisstjórn. Sífelld barátta hefur verið í gangi að halda þjónustunni opinni, t.d. um sumartímann, og það er bagalegt. Eins og félags- og húsnæðismálaráðherra segir: Fíknin fer ekki í sumarfrí.

Tekið er undir með framsögumanni að upplýsingar vanti um umfang áfengis- og fíknivanda en slíkar upplýsingar eru mikilvægar til að átta sig betur á þörfinni. Hér er ekki verið að gagnrýna árangur þjónustunnar. Við vitum að meðferð á Vogi hefur bjargað mörgum mannslífum. Biðtími fyrir þann sem bíður meðferðar hlýtur hins vegar oft að vera hreinasta víti. Ekki er vitað um kannanir sem hafa skoðað hvernig þeim sem bíða meðferðar vegnar á biðtímanum með tilliti til sjúkdómsins og fylgikvilla hans.

Komið hefur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að ákveðnir hópar fái ekki þjónustu við hæfi í þeim úrræðum sem til eru. Ef horft er til ungra neytenda má einmitt spyrja að þessu og einnig hvort úrræði séu nægilega fjölbreytt. Er tekið tillit til einstaklingsbundinna þátta í þeim úrræðum sem í boði eru? Þegar um neytendur undir 18 ára aldri er að ræða reynir á barnaverndarkerfið og stuðningsúrræði fyrir foreldra.

Að lokum langar mig að draga það fram að aðdragandi að áfengis- og fíknivanda er oftar margra missera ef ekki ára. Alkóhólismi og fíknisjúkdómur er stigvaxandi sjúkdómur. Á meðan alkóhólistinn drekkur eða neytir vímuefna mun ástandið aðeins versna.