Áfengis- og vímuefnavandinn.
Virðulegi forseti. Ég vil líkt og aðrir þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir að taka þessa umræðu hér inni í þingsal. Hún er mikilvæg. Ég vil líka hvetja hv. þingmenn því að pólitík getur stundum verið svolítið hörð og hún getur stundum verið ósanngjörn en það er mikilvægt að við sem hér stöndum kynnum okkur líka málin áður en við tökum hér til máls og alhæfum hluti. Það er nefnilega þannig að ýmislegt hefur verið gert í tengslum við þennan faraldur á síðustu árum og frá fyrri ríkisstjórn, þó að vissulega megi alltaf gera betur. Hæstv. heilbrigðisráðherra fór ágætlega yfir þetta áðan og hvað hefur verið að gerast en entist ekki tími til að fara yfir allt. En ég ætla aðeins að fara yfir í mínu máli hvað var gert á síðasta kjörtímabili.
Heilbrigðisráðuneytið og fyrrverandi heilbrigðisráðherra réðust í margvíslegar aðgerðir sem miða að því að draga úr skaða af völdum ópíóíðafíknar og tryggja aðgengi að meðferð. Heildarsamningur var gerður milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ sem veitir SÁÁ aukið svigrúm til að forgangsraða þjónustu sinni og þróa hana enn frekar. Þessi samningur var undirritaður í september á síðasta ári og tryggir aukið aðgengi að viðhaldsmeðferð og flýtiþjónustu fyrir þá sem þurfa á henni að halda. Fyrri ríkisstjórn veitti einnig styrki til verkefna sem snúa að fíknisjúkdómnum þar sem 30 millj. kr. voru eyrnamerktar sérstaklega verkefnum sem vinna gegn ópíóíðafíkn. Þá var opnuð sérhæfð móttaka í Efstaleiti í Reykjavík fyrir einstaklinga sem vilja draga úr eða hætta notkun ávanabindandi lyfja; frumkvöðlaverkefni sem byggist á samstarfi sprotafyrirtækisins Prescriby við spítala, heilsugæslustöðvar og apótek og tryggir öruggari niðurtröppun og bætt lífsgæði þeirra sem þurfa á aðstoð að halda. Á sama tíma var ráðist í dreifingu á naloxón-lyfi um allt land, m.a. í bíla viðbragðsaðila, til að tryggja skjót viðbrögð við ofskömmtun. Lyfjastofnun vinnur jafnframt að því að naloxón verði selt í lausasölu þannig að það verði aðgengilegt hverjum sem er. (Forseti hringir.) Þessar aðgerðir eru hluti af stærri heild og stefnumótun í áfengis- og vímuefnamálum sem var í mótun hjá fyrri ríkisstjórn (Forseti hringir.) en við vitum að þetta er ekki einföld áskorun. Það hafa vissulega verið tekin góð skref(Forseti hringir.) og ég bind vonir við að núverandi stjórnvöld muni halda áfram að vinna hörðum höndum að því að tryggja að hver sá sem glímir við þann erfiða sjúkdóm fái nauðsynlega aðstoð.