Áfengis- og vímuefnavandinn.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni, sem hefur verið ötull baráttumaður í þessum málaflokki, fyrir að opna á þessa umræðu. Við hér á þingi erum minnt á við hverja fjárlagagerð að í þennan málaflokk vantar fjármagn. Skýrasta dæmið er auðvitað sumarlokanir meðferðarheimila sem þurft hefur að grípa til og á það bendir Ríkisendurskoðun svo skýrt. Þessu er nú verið að breyta af núverandi ríkisstjórn. Við skulum hins vegar minna okkur á að eitt ríkisúrræði dugar ekki fyrir alla. Fólk ánetjast vímuefnum á ólíkum aldri og úrræði sem hentar fyrir fullorðinn og fullþroska einstakling hentar ekkert endilega fyrir yngra fólk. Þá hefur líka komið í ljós að það er ekkert endilega rétt að öll kyn séu sett undir sama hatt þegar kemur að því að þjónusta þessa einstaklinga. Við erum nefnilega á misjöfnum stað í þessu lífi. Síðan megum við ekki gleyma þeim stuðningi sem jafningjasamtök eins og AA-samtökin hafa veitt þúsundum einstaklinga og sá sem hér stendur væri ekki hér nema fyrir þau samtök. Mikilvægi forvarna er einnig ótvírætt og þeim þarf að sinna strax á fyrsta skólastigi til að ungt fólk læri fljótt og vel um skaðsemi fíkniefna. Í starfi skipta fyrirmyndir miklu. Börn hafa tilhneigingu til að gera það sem stóru átrúnaðargoðin eru að fást við. Ég er verulega hugsi yfir þeirri orðræðu sem á sér stað þessa dagana þar sem verið er að gullhúða fíkniefnaneyslu á einhvern hátt. Á minni tíð var LSD eitt það hættulegasta sem fólk setti ofan í sig en nú heitir þetta hugvíkkandi efni sem á víst að vera allra meina bót.
Virðulegur forseti. Svona umræðu og orðræðu þurfum við að varast.