156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[11:45]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 107, sem er mál nr. 107. Um er að ræða frumvarp þar sem mælt er fyrir því að felldar verði á brott þær breytingar sem gerðar voru á búvörulögum nr. 99/1993, með lögum nr. 30/2024, svokölluð framleiðendafélög. Frumvarp þetta er samið í matvælaráðuneytinu.

Til að fara stuttlega yfir forsögu málsins þá var frumvarp þáverandi matvælaráðherra um breytingu á búvörulögum lagt fyrir Alþingi í nóvember 2023. Með því frumvarpi var lagt til að heimila fyrirtækjum í eigu eða undir meirihlutastjórn frumframleiðenda, þ.e. bænda, að eiga með sér samstarf um afmarkaða þætti líkt og tíðkast í nágrannalöndum. Í frumvarpinu var gert ráð fyrir að félag gæti talist til framleiðendafélags ef bændur réðu að lágmarki yfir 51% atkvæða í félaginu. Einkum var horft til reglna ESB á þessu sviði og með frumvarpinu var stefnt að því að styrkja stöðu frumframleiðenda búvara og skapa tækifæri til aukinnar samvinnu og verðmætasköpunar. Framangreint frumvarp frá 2023 var í samræmi við þingsályktun um landbúnaðarstefnu til ársins 2040, nr. 21/153, sem samþykkt var á Alþingi 1. júní 2023, þar sem stefnt var að því að styrkja stöðu bænda og skapa tækifæri til aukinnar samvinnu og verðmætasköpunar meðal þeirra.

Hugsunin með þessu frumvarpi, sem þáverandi matvælaráðherra lagði fram í samræmi við samþykkta landbúnaðarstefnu, var ekki að haga löggjöfinni þannig að hún félli að starfandi afurðastöðvum án breytinga heldur yrði þeim gert kleift að nýta sér undanþáguna ef tryggt væri að félögin væru undir stjórn frumframleiðenda og gætu þá talist til framleiðendafélaga. Með því fengju félögin aukið svigrúm til að vinna saman í þágu bænda enda væru þau undir þeirra stjórn.

Frumvarpið tók hins vegar gagngerum breytingum í þinglegri meðferð síðastliðið vor og sendu Samkeppniseftirlitið, Alþýðusamband Íslands, VR, Neytendasamtökin, Félag atvinnurekenda og Samtök verslunar og þjónustu frá sér ýmist yfirlýsingar eða umsagnir vegna frumvarpsins þegar breytingartillögur voru lagðar fram á þinginu. Í umsögn Samkeppniseftirlitsins kom m.a. fram að með þeim breytingartillögum sem fram kæmu í nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar hefðu efnisákvæði upphaflegs frumvarps verið endurskrifuð frá grunni. Mat Samkeppniseftirlitsins var að með þessum breytingum myndu íslenskar afurðastöðvar búa við undanþágur frá samkeppnislögum sem hvergi þekktust í nágrannalöndum okkar. Í erindi Samkeppniseftirlitsins til matvælaráðherra í mars 2024 kemur fram að þær heimildir sem veittar voru með lögunum gangi lengra en þekkist í nágrannalöndum, líkt og fyrr greinir, og stríði þess að auki gegn markmiðum samkeppnislaga, sbr. 18. gr. laganna.

Í sameiginlegri umsögn VR, Neytendasamtakanna, Samtaka verslunar og þjónustu og Félags atvinnurekenda í mars 2024 er varað eindregið við samþykkt frumvarpsins svo breyttu. Þar kom einnig fram að um nýtt frumvarp væri að ræða sem gengi mun lengra en það upphaflega. Líklegar afleiðingar samþykktar frumvarpsins yrðu verðhækkanir á kjötvörum og þar með aukin verðbólga. Málið var, þrátt fyrir framangreindar athugasemdir, afgreitt mjög hratt á þinginu með breyttu sniði og samþykkt sem lög 21. mars 2024.

Þá vil ég líka geta þess hér að fjallað hefur verið um stjórnskipulegt gildi laganna í dómi sem var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember á síðasta ári. Í niðurstöðukafla héraðsdóms er fjallað um að áskildum fjölda umræðna skv. 41. gr. stjórnarskrárinnar hafi ekki verið náð í þinglegri meðferð málsins. Umrædd breyting sem gerð hafi verið á búvörulögum og samþykkt á Alþingi hafi þannig ekki verið sett á stjórnskipulegan hátt þar sem hún stríði gegn stjórnarskrá og hafi af þeim sökum ekkert lagagildi. Það mál er nú til meðferðar hjá Hæstarétti Íslands. En ég vil árétta að það frumvarp sem ég mæli fyrir hér er þó ekki lagt fram á grundvelli þess að þessi var niðurstaða héraðsdóms heldur tel ég nauðsynlegt að bregðast við lagasetningunni í ljósi allra þeirra athugasemda og ábendinga sem bárust vegna lagasetningarinnar, m.a. og ekki síst frá Samkeppniseftirlitinu. Má t.d. nefna að frumvarp það sem Alþingi samþykkti í mars 2024 veitir undanþágu frá ákvæðum laga er varðar samrunaeftirlit og gerir félögum sem undir lögin falla kleift að sameinast án tillits til ákvæða samkeppnislaga um samrunaeftirlit. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins þekkjast svo víðtækar undanþágur frá samkeppnislögum ekki neins staðar í Evrópu. Að auki var gildissvið undanþágunnar í meðförum meiri hlutans rýmkað þannig að undir hana féllu ekki lengur aðeins félög að meiri hluta undir stjórn bænda, líkt og upphaflegt frumvarp gerði ráð fyrir, heldur öll félög og samtök félaga sem eru fyrstu framleiðendur kjötafurða og afleiddra afurða, þ.e. annast slátur og/eða vinnslu slíkra afurða.

Þess má geta að í nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar, sem fylgdi breytingartillögunum, kom fram að meiri hluti nefndarinnar lagði til breytingar til að afmarka frekar til hvaða félaga undanþágan næði, þ.e. að undanþáguheimildin tæki til afurðastöðva sem væru að hluta eða öllu leyti í eigu bænda og stýrt af bændum, eins og segir í nefndaráliti. Það endurspeglaðist þó ekki í breytingartillögunum sjálfum þar sem slík skilyrði, varðandi eignarhald eða stjórnenda í framleiðendafélögum var ekki að finna.

Einnig vil ég nefna að með breytingunum eru engar hömlur á því að afurðastöðvar fyrirtækja sameinist eða komi jafnvel á einokun. Þau geti þannig öðlast stjórn á verði þeirra afurða sem bændur útvega, sem og verðlagningu til neytenda, án aðhalds samkeppninnar eða annarra úrræða á borð við opinberar verðlagsákvarðanir eins og þekkist t.d. í mjólkuriðnaði.

Þá eru heldur engin ákvæði í lögunum um að skilja beri á milli þeirrar starfsemi félaganna sem falla undir undanþáguna og annarrar starfsemi þeirra, svo sem innflutnings á kjöti. Þá er löggjöfin jafnframt haldin þeim ágalla varðandi það eftirlit sem tekið er fram í breytingunum að Samkeppniseftirlitinu er ætlað að sinna, að þar er hvergi að finna viðeigandi valdheimildir til rannsókna eða íhlutunar og er eftirlitið því algerlega marklaust eins og það stendur núna.

Auk þessa ríkir vafi um að breytingarnar fái samræmst skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum þó svo að Ísland hafi ríkt svigrúm til athafna innan landbúnaðar, líkt og nánar er greint frá í fyrirliggjandi álitsgerð Carls Baudenbachers um samspil landbúnaðar og EES-samningsins. Þau skaðlegu áhrif sem geta hlotist af þeim efnislegu breytingum sem felast í lögunum frá 2024 beinast bæði gegn bændum og neytendum. Engar mótvægisaðgerðir eru því til fyrirstöðu að hinar víðtæku undanþágur frá samkeppnislögum bitni á þeim hagsmunum sem lögunum er ætlað að vernda.

Það er viðurkennt í samkeppnisrétti að við tilteknar aðstæður geti samvinna fyrirtækja verið til þess fallin að stuðla að aukinni hagræðingu, skilvirkni og eflt tæknilegar framfarir. Því er gert ráð fyrir slíku samstarfi innan heimilda samkeppnislaga og eru skilyrðin tilgreind í 15. gr. laganna. Til þess að slíkt samstarf sé heimilt þurfa jákvæð áhrif að vega þyngra en þau neikvæðu. Fyrir liggja ítarlegar leiðbeiningar frá Samkeppniseftirlitinu um hvernig unnt er að nýta þessa undanþáguheimild.

Í samkeppnislögum má einnig finna skýran ramma er varðar samruna fyrirtækja og hafa þær reglur m.a. nýst vel í nýlegum samruna innan atvinnugreinarinnar, landbúnaðar, á Norðurlandi, þ.e. samruna Kjarnafæðis og Norðlenska. Þetta kerfi er til og þar liggja tækifæri fyrir afurðastöðvarnar með hliðsjón af skýrslum sem liggja fyrir um tækifæri til hagræðingar. Þetta eru heimildir sem eru til staðar innan samkeppnislöggjafarinnar.

Virðulegi forseti. Ég tel mikilvægt að heimildir bænda á Íslandi til samstarfs og samvinnu í afurðamálum séu formfastar og að þær heimildir séu ekki lakari en þær sem tíðkast í nágrannalöndum okkar. Innan atvinnuvegaráðuneytisins er þegar hafin vinna við að undirbúa slíkt frumvarp sem er fyrirhugað að leggja fram í byrjun næsta löggjafarþings. Markmið þess frumvarps er að styrkja stöðu bænda og tryggja að innlendir framleiðendur, íslenskir bændur, búi ekki við lakara svigrúm til samstarfs og hagræðingar en gerist í nágrannalöndum okkar. Hins vegar er ljóst að þær breytingar sem voru gerðar á búvörulögum með lögum nr. 30/2024 tryggja ekki að ávinningur skili sér til bænda eða neytenda, eins og ég hef hér bent á. Við erum því í þeirri stöðu að það er nauðsynlegt að færa búvörulögin aftur til fyrra horfs, fyrir setningu laga nr. 30/2024. Með frumvarpi þessu er þannig brugðist við þeirri stöðu sem upp er komin og þeim ábendingum sem ráðuneytinu hafa borist í kjölfar þess að umrædd lög voru samþykkt. Ég vil taka fram hér að þær ábendingar sem hafa borist hafa líka falið í sér ábendingar frá afurðastöðvum um þann vanda sem þær standa frammi fyrir og það verður að sjálfsögðu hluti þess sem tekið verður tillit til við samningu hins nýja frumvarps eða uppfærslu. Að öðru leyti vil ég vísa til þeirrar greinargerðar sem fylgir frumvarpinu þar sem má finna ítarlega umfjöllun um efni þess. Að lokinni þessari framsögu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umræðu og til hv. atvinnuveganefndar.