búvörulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna á þessu allsérstæða máli. Það eru þó nokkrir hlutir sem væri áhugavert að spyrja hæstv. ráðherra um en ég ætla að halda mig við tvö atriði og það fyrra er að í framsögunni er vart minnst á það að málið er til meðferðar hjá æðsta dómstól landsins, Hæstarétti, hvað þá að það standi í greinargerð sem hæstv. ráðherra kallaði ítarlega. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra af hverju í ósköpunum, svo ég taki hér upp hugtak sem stundum er notað í þessu ræðupúlti, var ekki beðið eftir niðurstöðu Hæstaréttar. Hvaða lagalega staða getur komið upp að mati hæstv. ráðherra og ráðuneytis ef Hæstiréttur staðfestir ekki héraðsdóm og ríkisstjórnin hafi reynt að troða þessu máli í gegn áður en hæstaréttardómurinn liggur fyrir, sem ég bara skil ekki?