búvörulög.
Forseti. Ég er sammála hv. þingmanni að því leyti til að það er algerlega fráleitt að skilja þessa viðkvæmu atvinnugrein upp í loft eins og gert var með framgöngu meiri hlutans á Alþingi þegar hann keyrði þetta mál í gegn síðastliðið vor. Við því er verið að bregðast hér. Ef einhver óvissa er uppi vegna þessa máls þá vísa ég ábyrgð á því alfarið á þáverandi meiri hluta sem hv. þingmaður var hluti af. Það er staðan og við því er verið að bregðast, hvort sem það verður gert með dómi, með því að Hæstiréttur staðfesti áfellisdóm héraðsdóms yfir vinnubrögðum meiri hlutans eða ekki. Þetta mál er vont, það þjónar ekki tilgangi sínum og það verður horfið aftur til þess sem þáverandi matvælaráðherra lagði fram á sínum tíma, mögulega að viðbættum einhverjum breytingum sem hafa komið fram í umsögnum aðila eftir það sem á undan er gengið. Ég undra mig satt best að segja á því að þetta skuli leggjast svona illa í hv. þingmann vegna þess að hér er raunverulega verið að bæta hag bænda.