156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[12:16]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Forseti. Til að svara fyrst athugasemd hv. þingmanns um að frumvarpið sem ég mæli fyrir hér sé vanbúið að því leyti að það taki ekki til sérstakra greina, þá er það einfaldlega þannig að greinargerðin sjálf felur það í sér. Þetta er einfalt að gerð og það var bara lögfræðilegt mat að það væri nóg að þetta yrði gert svona. Það er bókstaflega verið að gera athugasemdir sem koma fram í greinargerðinni og eiga við um þessar einstöku greinar frumvarpsins þannig að því er einfaldlega svarað þannig.

Hvað varðar áhyggjur hv. þingmanns af þeim sameiningum sem þegar hafa átt sér stað á grunni þessara laga þá á það við um þetta frumvarp eins og önnur að það er ekki afturvirkt. Myndi hv. þingmaður spyrja mig hversu mörg fyrirtæki hafa nýtt sér þessar undanþágur, að vera algerlega laus undan eftirliti samkeppnisyfirvalds, þá gæti ég ekki svarað því. Það gæti enginn, slík eru áhrif þeirra lagabreytinga sem meiri hlutinn stóð að síðastliðið vor. Það er ágætisvísbending um það hverslags vegferð það var. (Forseti hringir.) Ég get auðvitað ekki fullyrt um það, það veit mögulega hv. þingmaður betur en ég, hver áhrifin verða ef Hæstiréttur staðfestir dóm héraðsdóms. Þá erum við kannski á öðrum stað, en frumvarpið mun hafa áhrif fram í tímann.