156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[12:17]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég get ekki sagt að ég sé nokkru nær, eftir framsögu hæstv. ráðherra og andsvör, um hvað það er sem liggur svona gríðarlega á að leggja málið fram á meðan það er til umfjöllunar hjá Hæstarétti, hvað þá að hæstv. ráðherra hafi náð að skýra það út í andsvörunum, hvað þá framsögunni, hvaða áhrif þetta hafi á atvinnugreinina, bændur, sem tilgangur þessara laga lýtur þó að. Það er kannski rétt, sem einhver nefndi áðan, að það væri einhver pólitískur þorsti, sem ég held að hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hafi nefnt, hér sé eitthvað verið að merkja, af því að ríkisstjórnin hefur sannarlega ekki lagt mjög mikið af nýjum málum fram. Það voru tvö mál sem vöktu athygli. Annað var það að fella brott búvörulög og hitt átti að lúta að því að fara í einhverjar tollabreytingar. Þegar einhverjir í útlöndum settu smávegis af jurtaolíu út í mjólkurost þá skyldi hann kallaður jurtaostur. Það væri rétt að mati Viðreisnar. Þetta hljómar svolítið eins og þarna sé pólitískur veruleiki Viðreisnar, að verja sérhagsmuni innflutningsaflanna, að setja það hér á dagskrá, með stuðningi Samfylkingarinnar, með stuðningi Flokks fólksins. Það er það sem birtist mér.

Ég ætla að fara nokkrum orðum um það af hverju við erum að fjalla um svona mál. Frá örófi alda hafa bændur á Íslandi þurft að keppa einir, ýmist við verslunarveldin sem komu hér utan að, einokunarverslun Dana — það var frelsi þegar þeir fengu leyfi til að skipta við enska sjómenn sem komu hingað til lands. Það var síðan bannað. Síðan hélt þetta áfram og það var ekki fyrr en með stofnun samvinnufélaga sem bændur gátu sjálfir farið að standa saman, annars voru þeir algerlega undir hælnum á kaupmanninum. Þeir ráku féð hér í marga daga inn í stærri byggðir og það var algerlega undir kaupmanninum komið hvaða verð þeir fengu. Það er ekki fyrr en með samvinnulögunum sem bændur fara að taka sig saman og eru samningsaðilar við kaupmannaveldið. Þetta gekk svo langt í upphafi síðustu aldar að það var haldinn útifundur 16. janúar árið 1916 þar sem saman komu bændur af öllu landinu, úr Þjórsártúni, ríðandi norðan úr Bárðardal og vestan úr Borgarfirði, þar sem þeir samþykktu m.a. ályktun um að koma skyldi á uppskipunarhöfn í Þorlákshöfn til að standast vald Reykjavíkurkaupmanna sem stjórnuðu öllu Íslandi þá.

Síðan hefur öldin liðið og samkeppni bændanna við kaupmannaveldið hefur verið misjöfn, sem er sárt og leiðinlegt vegna þess að hagsmunir bænda, neytenda og þar með verslunarinnar sem milliliðar fara saman en ekki endilega innflutningsverslunarinnar. Hún er jú að keppa við íslenska framleiðslu. Þess vegna er merkilegt og áhugavert að fara yfir það í þessum þingsal, í upphafi þessarar umræðu hér, að þegar samkeppnislög voru sett í öllum löndum í kringum okkur, og á Íslandi upp úr 1990, til að mynda á öllum Norðurlöndunum, var allur landbúnaður undanskilinn samkeppnislögum, alls staðar nema á Íslandi. Og hverju skyldi það sæta? Er það vegna þess að pólitíkin á Íslandi varði frekar innflutningsöflin heldur en framleiðendurna, bændurna? Lögin voru sett af ríkisstjórninni 1991–1995, Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, sem er svona forveri Viðreisnar að einhverju leyti, sett til þess að viðhalda þessari stöðu, halda bændunum í spennitreyju, hleypa þeim ekki í þá stöðu sem allir bændur á Norðurlöndum og í Evrópu fengu við setningu sambærilegra laga í þeirra ríkjum. Það þótti hins vegar gríðarlegur sigur þegar menn fóru í gegnum mikla baráttu og fengu undanþágu til handa kúabændum, mjólkurframleiðendum, árið 2004, ef ég man rétt. Það þótti gríðarlegur sigur og flokkur hæstv. ráðherra hefur hamast á Mjólkursamsölunni öll undanfarin ár sem ég man eftir, að þetta sé óskapnaður, eins og hæstv. ráðherra notaði um þessi lög, óskapnaður að bændur á Íslandi eigi möguleika á að starfa með sambærilegum hætti og bændur í öllum öðrum löndum. Það er í því ljósi sem þetta frumvarp kemur fram á fyrstu dögum ríkisstjórnarinnar, fyrstu verkin sem þau vilja láta bera því vitni hvert þau eru að stefna, fyrir utan þau frumvörp sem þau flytja frá fyrri ríkisstjórn, eðlilega.

Mjólkursamsalan hefur hins vegar tryggt bændum ákveðna afkomu. Það var farið í þessa hagræðingu og hún var svo umdeild að það voru teknar skoðanir og skoðanir ofan. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fór í þá skoðun. Niðurstaðan var sú að þarna hefði orðið, á þeim tíma, fyrir 20 árum, um 4 milljarða hagræðing, ávinningur sem hafði skipst á milli bænda og neytenda. Í dag veltir held ég Mjólkursamsalan einhverjum 38 eða 39 milljörðum, ef ég man rétt, og hagnaðurinn er stundum 10 til 20 millj. kr. og fer kannski upp í 100. Ef hann fer yfir þá tölu þá verða þeir sem tala um einokunina algerlega brjálaðir. Þetta mál hér er m.a. sprottið frá innflutningsfyrirtæki sem jók hagnað sinn um 700% á síðasta ári og veltuna um 7 milljarða, er farið að velta helmingnum, samkvæmt ársreikningaskrá, af Mjólkursamsölunni, sem er samstarf allra mjólkurframleiðenda í landinu og hefur tryggt, þessi hagræðing, ávinning bæði til neytenda og bænda og bara umtalsvert úrval af vöru; nýsköpun, þróun. Er virkilega verið að ganga þessara hagsmuna? Þetta er bara eitt innflutningsfyrirtæki sem veltir um 50% af veltu allra bænda. En ef við skoðum síðan stöðu bændanna þá höfum við séð að mjólkurframleiðendur hafa verið í betri stöðu en þeir sem framleiða kjöt. Þess vegna er ekki skrýtið að þeir sem reka afurðastöðvar, hvort sem er vegna sauðfjár eða nautgripa, hafa óskað eftir að sitja í sömu stöðu og allir bændur á Norðurlöndunum og í Evrópu og íslenskir mjólkurframleiðendur, kúabændur, allir. Nei, segir Viðreisn. Óskapnaður, sagði hæstv. ráðherra. Óskapnaður þegar heildsölufyrirtækin geta ekki vaxið bara eins og var í gamla daga áður en samvinnufélögin urðu til, á fyrri öldum þegar bændurnir voru bara undir hælnum á því hvort þeir fengju vöruna sína selda á því verði sem viðkomandi ákvað. Það er samkeppnisstaðan sem menn hafa horft í gegnum hér í áratugi. Það er ástæðan fyrir því að í öllum löndum í kringum okkur voru fyrirtæki bænda, landbúnaðar, undanskilin samkeppnislögum öllum. Staðan er þannig í dag að við erum einungis samanburðarhæf þegar kemur að mjólkurframleiðslu. Í öllum hinum geirunum, hvort sem er kindakjötsframleiðslu, nautakjötsframleiðslu, eggjaframleiðslu, skógrækt, hvað þá grænmeti eða garðyrkju. Nei, nei, þau skulu öll vera undir samkeppnislögum, ólíkt öllum bændunum í kring. Síðan eru fluttar inn vörur frá þessum fyrirtækjum sem þurfa ekki að uppfylla þessi skilyrði og keppa við íslenska bændur sem mega ekki sitja við sama borð að mati Viðreisnar og nýrrar ríkisstjórnar. Það er staðan og mér finnst hún ekki góð.

Ef maður skoðar þetta frumvarp þá er það óneitanlega þannig að sérkennilegur dómur héraðsdóms í haust virðist við fyrstu sýn ekki halda vatni. Það voru lögfræðingar sem skrifuðu greinar um það. Ef þetta væri tilfellið þá væru fjölmörg lög á Íslandi sem hefðu verið sett, og það voru tekin dæmi, sem stæðust þá ekki heldur stjórnarskrá, sem hefðu tekið umtalsverðum breytingum og miklu meiri breytingum heldur en raun bar vitni í þessu máli.

Staðreyndin er hins vegar sú að það hefur stundum verið talið þessu þingi til tekna að það sé sjálfstæðara og breyti lögum meira, hvort sem það er vegna þess að Stjórnarráðið skilar lélegum frumvörpum og það þurfi að laga þau meira eða hvort það sé hið raunverulega sjálfstæði þingsins sem geri það að verkum að við breytum meira hérna í þingsal, sem er talið jákvætt, merki um að þingræðið sé sterkara en einhver stimpilstofnun.

Í lögunum sem hæstv. ráðherra ætlar núna að fella brott og ætlar að koma með einhver úrræði í haust þegar einhverjar greiningar liggja fyrir, því að þær liggja greinilega ekki fyrir í dag, þá var fellt út fullt af skilyrðum sem voru um hvernig hlutirnir eiga að vera á þessum markaði, til að mynda skilyrði um að fyrirtækjum sem nýti sér þessa leið sé skylt að safna saman sláturgripum á sambærilegum viðskiptakjörum alveg óháð því hvar þeir búa. Farið. Það voru þrjú önnur skilyrði til að vernda minni fyrirtæki og bændurna gegn ofríki hins stóra. Farið. Það er búið að fella þetta út. Það er ekki minnst á þetta í greinargerðinni. Það sem stendur í greinargerðinni, og hún er fátækleg um áhrifamat, ég verð að segja alveg eins og er, kemur undir lok frumvarpsins. Mér sýnist að það séu innan við tíu línur:

„Frumvarpið snertir fyrst og fremst bændur, framleiðendafélög og neytendur. Þá varðar málið jafnframt alla landsmenn …“ — með leyfi forseta, þá er ég að vitna til þessa frumvarps. Síðan kemur:

„Talið er að áhrif þeirra breytinga sem lagðar eru til með frumvarpinu hafi lítil sem engin áhrif á stöðu kynjanna. Ekki þótti ástæða til að framkvæma sérstakt jafnréttismat. Verði frumvarpið óbreytt að lögum mun það ekki kalla á aukin útgjöld ríkissjóðs. Þá er talið að frumvarpið hafi ekki áhrif á tekjur eða eignir ríkissjóðs.“

Hvað með áhrifin á bændur? Hvað með áhrifin á neytendur? Hvað með áhrifin á afurðastöðvarnar sem allar skila tapi, eða allflestar, ólíkt heildsölufyrirtækinu sem hefur skilað yfir 3 milljörðum í hreinan hagnað á síðastliðnum 15 árum samkvæmt ársreikningunum? Þau eru öll að fara á hausinn. Hvað með áhrifin á þau ef þetta frumvarp verður að lögum? Var ekki lögð nein vinna í það? Á að svara því í haust eftir sex mánuði eða átta mánuði? Á bara að skilja allt eftir uppi í lofti þangað til? Það getur vel verið að mönnum hitni aðeins í hamsi yfir því þegar maður sér svona grímulausa sérhagsmunagæslu sem hér kemur fram hjá hæstv. ríkisstjórn og hæstv. ráðherra. Málið er til umfjöllunar hjá Hæstarétti. Það er vart minnst á það í greinargerð með þessu frumvarpi og kom heldur ekki fram í framsögu ráðherrans. Það er ein setning, með leyfi forseta. Þar stendur:

„Með ákvörðun Hæstaréttar í máli nr. …“ — sem vísar þá í héraðsdómsmálið — „var Samkeppniseftirlitinu veitt heimild til að áfrýja umræddum héraðsdómi beint til Hæstaréttar.“

Punktur. Það stendur ekkert um það hvenær Hæstiréttur ætlar að fjalla um málið. Það stendur ekkert um þá lagalegu óvissu sem kemur upp óháð því hver niðurstaðan verður þegar Hæstiréttur hefur fjallað um málið. Það er bara skilið eftir og næstu mánuðir verða þá bara allir í óvissu og upplausn í boði hæstv. ráðherra og hæstv. nýrrar ríkisstjórnar með stuðningi Samfylkingar og Flokks fólksins, að fara vegferð Viðreisnar sem hefur grímulaust verið tilbúin til að ganga leið sérhagsmunaaflanna, innflutningsaflanna. Ég segi það hér úr þessum ræðustól vegna þess að það er svoleiðis og staðfestist endanlega með umræðunni hér um tollinn á mjólkurost sem er 85% mjólkurostur. Hann á að fá 0% af því að það er búið að blanda smá jurtaolíu út í hann. Við vorum að grínast með hvort það væri hægt að vera með 80% spíra og setja 5% ávaxtasafa út í hann og kalla hann ávaxtasafa og flytja hann inn í tollflokknum ávaxtasafar. Þetta hljómar allt saman dálítið sérkennilegt og menn tilbúnir að ganga býsna langt. Í þessu frumvarpi sýnist mér hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórn vera tilbúin til að ganga mjög langt til að verja sérhagsmuni umfram almannahagsmuni bænda, neytenda og landsbyggðarinnar, þessara 12.000 starfa sem eru í íslenskum landbúnaði, (Forseti hringir.) og taka réttinn af íslenskum bændum til að sitja við sama borð og allir bændur á Norðurlöndum og í allri Evrópu, óháð því hvort þeir eru í Evrópusambandinu eða ekki.