156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[12:34]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Var það nóg? Ja, ef markmiðið var, og núverandi ríkisstjórn er sammála því, að tryggja það að aðilar sem fyrst og fremst höndla hér með og framleiða hvítt kjöt geti starfað saman, en bændur sem framleiða kindakjöt og nautakjöt séu skildir eftir þar fyrir utan, þá var það nóg. Að mínu mati er það alls ekki nóg, engan veginn nóg. Það var mjög mikilvægt að ná akkúrat utan um þá framleiðslu sauðfjárbænda, sem er sú stétt íslenskra bænda sem hefur haft það verst í mjög langan tíma eftir að það varð hrun hér á markaðnum einhvern tímann 2015, 2016, 2017 líklega, eitthvað svoleiðis. Og frá 2017 þá hefur með þeim aðgerðum sem þáverandi ríkisstjórn stóð fyrir tekist að hækka verð til bændanna umfram vísitöluna, aðallega á síðastliðnum þremur árum án þess að það hafi endilega haft í för með sér hækkun á verði til neytenda. Með öðrum orðum, (Forseti hringir.)það hefur tekist að gera það sem gera þurfti. Það hefði verið gáfulegra að mínu mati (Forseti hringir.)að ríkisstjórnin hefði komið inn með breytingar til að ná fram sínum markmiðum en að henda á brott sömu tækifærum íslenskra bænda og þeirra sem alls staðar annars staðar búa …

— Þingmaðurinn var næstum því dottinn úr pontu.

(Forseti (BHar): Ég bið þingmanninn um að fara varlega — og hæstv. ráðherra.)