156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[12:49]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var efnismikil og góð. Ég kann vel við það þegar menn rifja upp söguna. Ég er ekki alveg viss um að ég og hv. þingmaður séum sammála þegar kemur að samvinnuhreyfingunni og hvernig hún hafi einhvern veginn breytt grjóti í blóm fyrir bændur landsins, en það er aukaatriði. Mér finnst gott að taka umræðuna á dýptina og hv. þingmaður gerði það ágætlega. Ég get tekið undir margt sem kemur fram í hans málflutningi en ég vil samt spyrja hv. þingmann, vegna þess að þegar samruninn varð í mjólkurafurðastöðvunum og þær afleiðingar þá voru rökin alltaf sú að verið væri að keppa við innflutninginn. Nú eru sömu rökin þegar kemur að kjötafurðastöðvunum en nú eru þær mjög stórar og dótturfélög þeirra í innflutningi á kjöti, erlendu kjöti, og held ég alla vega að félagsmenn í Kaupfélagi Skagfirðinga hafi t.d. mótmælt því. (Forseti hringir.) Hver er afstaða hv. þingmanns þegar kemur að því að afurðastöðvarnar sjálfar séu í innflutningi á erlendu kjöti, sem hefur aukist mjög?