búvörulög.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og það er alveg rétt að við klárum ekki þær söguskýringar. Samvinnurekstur á alveg rétt á sér en það eru ýmsar hliðar á því sem við getum rætt hér. En ég held, alveg sama hvað mönnum finnst um málið og mér fannst hv. þingmaður vera á svipuðum stað, að við séum öll sammála um, eða ég vona það, að hafa svo sannarlega öflugan íslenskan landbúnað. Hann er heimskautalandbúnaður og getur ekki keppt í verði en getur keppt í gæðum að mínu áliti, þar eru meiri gæði en í þeim landbúnaðarafurðum sem ég borða annars staðar. Aftur á móti er auðvitað veikleiki í því að afurðastöðvarnar, sem hv. þingmaður er búinn að færa rök fyrir að verði að hafa ákveðna sérstöðu eins og í öðrum löndum, stundi síðan innflutning á erlendu kjöti sem þær eiga að keppa við. Mér heyrist að ég og hv. þingmaður séum sammála um það. Ég er sammála því að það er nokkur asi á þessu máli sem ég er ekki fylgjandi en ég held að það sé mikilvægt í þessum sal að við ræðum þessi mál á dýptina því að það er mikið undir.