156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[14:00]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum. Eins og segir í frumvarpinu þá eru felldar brott breytingar sem gerðar voru á búvörulögum á síðasta löggjafarþingi með lögum nr. 30/2024. Þar með verða felld úr gildi ákvæði um svokölluð framleiðendafélög og undanþágur slíkra félaga, eins og þau eru skilgreind samkvæmt framangreindum lögum, frá ákvæðum samkeppnislaga. Markmiðið er að bregðast við ábendingum sem ráðuneytinu hafa borist vegna lagasetningarinnar og stöðu í kjölfar dóms Héraðsdóms Reykjavíkur frá 18. nóvember 2024 þar sem dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að lögin hafi ekki verið sett á stjórnskipulegan hátt því að frumvarpið hafi tekið gagngerum breytingum í þinglegri meðferð. Það sem hefur gerst er að þetta frumvarp hefur tekið gagngerum breytingum í þinglegri meðferð og er í raun orðið að nýju máli.

Það frumvarp sem Alþingi samþykkti 21. mars 2024, sbr. lög nr. 30/2024, veitti undanþágu sem gerði félögum sem undir lögin falla kleift að sameinast án þess að ákvæði samkeppnislaga um samrunaeftirlit væru virt. Með því var komið færi til að búa til einokun á markaði sem ekki er við unað. Að auki var gildissvið undanþágunnar rýmkað þannig að undir hana féllu ekki lengur aðeins félög að meiri hluta undir stjórn bænda líkt og upphaflegt frumvarp gerði ráð fyrir, heldur öll félög og samtök félaga sem eru fyrstu framleiðendur kjötafurða og afleiddra afurða og annast slátrun og/eða vinnslu. Líkt og bent hefur verið á, m.a. í sameiginlegri umsögn frá Samtökum verslunar og þjónustu, Félagi atvinnurekenda, Neytendasamtökunum og VR og fleiri eru með þessum breytingum engar hömlur á að afurðastöðvar fyrirtækja sameinist og komi á einokun. Í þeim lögum sem nú á að fella úr gildi réðu þeir mestu sem reka vinnsluna. Þeir réðu langmestu um afdrif og verð afurða. Frumframleiðendur, bændur, missa þannig áhrif. Benda má á að þessi sömu fyrirtæki flytja inn stóran hluta af því kjöti og ostum sem við getum flutt inn. Þessi fyrirtæki kaupa tollkvótana og geta ráðskast með smásölu á þessum landbúnaðarvörum.

Þetta frumvarp sem hér er flutt — og ber að þakka hæstv. ráðherra, Hönnu Katrínu Friðriksson, fyrir það — er því nauðsynlegt til að bæta ástand á þröngum markaði og viðhalda samkeppni. Markmið þessa frumvarps er að rétta af galla á núverandi búvörulögum. Hér er því um stórt neytendamál að ræða. Einokun á markaði er eitur fyrir neytandann. Við þurfum heilbrigða samkeppni. Þetta frumvarp er nauðsynlegt til að bæta ástand á þröngum markaði og stuðla einmitt að heilbrigðri samkeppni.

Lögin voru dæmd ólögleg í héraði enda voru þau ekki sett rétt með stjórnskipulegum hætti eins og áður hefur komið fram. Samt sem áður eru raddir uppi um að reyna til þrautar á lögmæti þessara umdeildu laga vegna meintrar nauðsynjar þess að ná fram verkaskiptingu og hagræðingu við slátrun búfjár. Ég vil, með leyfi forseta, hnykkja á lokaorðum um þetta frumvarp. Þar segir:

Það er hægt að ná fram umræddri hagræðingu innan gildandi samkeppnislaga að ákveðnum skilyrðum uppfylltum sem felast fyrst og fremst í því að tryggja að bændur og neytendur fari ekki varhluta af ávinningi af hagræðingunni. Til þess að skapa breiða sátt um greinina þá ætti það að vera í forgangi að tryggja að slík umgjörð verði sett því það er jú allra hagur.

Mér finnst eftir að hafa hlustað á þessa umræðu að fram hafi komið tvö gjörólík sjónarmið og skoðanir og röksemdafærslur. Það er mjög sérkennilegt, miðað við þetta ágæta frumvarp og þessa leiðréttingu sem ég vil kalla sem verið er að gera, að einstaka hv. þingmaður hér hefur snúið málinu algjörlega á hvolf eins og ég skil þetta. Síðan hvenær er það gott að skapa aðstæður fyrir einokun? Hér er verið að tala um að taka úr gildi þann möguleika að margir aðilar geti einhvern veginn sameinast, orðið að einu stóru og sterku afli sem myndi síðan hreinlega gleypa markaðinn. Slíkt getur varla verið gott fyrir bændur sem hafa þá ekki möguleika á að velja úr hvar verðið er best. Því fleiri auðvitað sem eru í samkeppnispúllíunni, ef má orða það þannig, því betra fyrir þá sem eru að kaupa og skipta við aðilana og meiri möguleikar á hagstæðu verði.

Það er margt búið að koma fram í þessari umræðu og sennilega á fleira eftir að líta dagsins ljós hérna í þingsalnum á eftir. Ég vil kannski nefna að það er margítrekað búið að tala um þetta mál sem er fyrir dómstólum, sem er í rauninni ótengt, eins og fram kom hjá hæstv. ráðherra, því að það fjallar nokkurn veginn aðallega um framkvæmdahliðina. Jú, það er alveg rétt sem fram hefur einnig komið hérna, vissulega eru bændur í samkeppni við aðrar þjóðir og á þessum tíma hafa sameiningar átt sér stað sem ekkert er hægt að gera við því að auðvitað er ákveðinn tími liðinn síðan þessi lög sem verið er að fella úr gildi tóku gildi en það eru kannski áhyggjur hvort þeir sem hafa sameinast telji að þessi lög verði afturvirk en ég heyrði samt ekki betur en að svo verði ekki.

Það sem kannski sló mig mest í þessari umræðu hérna áðan var þetta tal um sérhagsmunagæslu. Mér finnst einmitt með þessu frumvarpi sérstaklega verið að reyna að koma í veg fyrir að það geti orðið einhver sérhagsmunagæsla. Þvert á móti er þetta akkúrat það sem þarf til þess að gæta að hag bænda og fá aftur heilbrigðan markað. Markmiðið er alveg klárlega að bæta hag bænda og auðvitað þar með neytenda því þetta hangir allt saman.

Ég vil kannski bara að lokum enn og aftur fagna þessu og þeim möguleika að þetta sé í rauninni gert eins og verið er að gera núna. Hér er búið að setja einhver ólög á og verið er að lagfæra það með því hreinlega að fella þau úr gildi og setja fram nýja útgáfu því þetta er í rauninni svo sem orðið eins og nýtt mál. Þetta er algjört sanngirnismál og ég hefði haldið kannski í barnaskap mínum að bændur myndu fagna þessu upp til hópa. Það er þess vegna sem maður situr hérna dálítið hissa. Ég hef svo sem séð greinar frá bændum, ákveðnum bændum sem eru á móti þessu og eru í uppnámi yfir þessu og ég spyr mig: Hvers vegna? Er það á þeim stöðum þar sem mögulega sameiningar hafa orðið og þeir aðilar sem eiga einhverja aðild að því óttast að þessi lög verði afturvirk? Eða hver er skýringin? Bændur eru stétt sem ég held mikið upp á og mér finnst mikilvægt að hlúa vel að bændastéttinni. Ég veit að í sumum greinum hennar er verulega verið að berjast í bökkum en stundum finnst mér líka — ég tek það fram að ég er alveg Reykjavíkurbarn í húð og hár þótt ég hafi farið í sveit á sínum tíma eins og gerðist í þá daga og gerist vonandi enn — eins og bændastéttin sé ekki einhvern veginn ein stétt heldur séu kannski einmitt þarna margar litlar stéttir með mismunandi hagsmuni og standi vörð um mismunandi hagsmuni og kannski er það bara eðlilegt í stétt eins og bændastéttinni. Mér finnst samt sem áður að það þurfi að tala um þetta með einhverjum skynsamlegum hætti. Við erum að tala hér um að forðast þróun í átt að einokun. Síðan hvenær hefur einhvers konar einokun verið góð? Það er enn þá fullt annað sem á eftir að taka á hvað það varðar. Sumt er líka bara barn síns tíma í þessum málum en hér er verið að laga lög sem voru ekki góð. Hvernig hægt er að sjá sérhagsmunagæslu í því sambandi finnst mér bara virkilega erfitt.