búvörulög.
Virðulegur forseti. Ég verð að segja í upphafi ræðu minnar að það er dapurlegt en samt upplýsandi að þessi afturköllun á þessum búvörulögum sé komin á dagskrá þingsins og sé hér til umræðu í dag. Af hverju segi ég þetta? Jú, eftir áralanga baráttu bænda og hagsmunasamtaka bænda náðist sá árangur á síðasta þingi að setja í lög að framleiðendafélögum, félögum sem vinna með kjötafurðir og afleiddar afurðir sé heimilt að sameinast og hafa samstarf. Þar segir:
„Þrátt fyrir ákvæði samkeppnislaga er framleiðendafélögum skv. 5. gr. heimilt að sameinast, gera með sér samkomulag um verkaskiptingu milli afurðastöðva að því er varðar framleiðslu einstakra kjötafurða og hafa með sér annars konar samstarf til þess að halda niðri kostnaði við framleiðslu, geymslu og dreifingu kjötvara.“
Af hverju var þetta gert? Jú, þetta var gert til að styrkja stöðu innlends landbúnaðar gagnvart síauknum innflutningi og samkeppni erlendis. Til að mæta þessum áskorunum þurfti að heimila afurðastöðvum í kjötiðnaði, sem sagt sláturhúsum og kjötvinnslum, að sameinast og starfa saman en slíkt var takmarkað af samkeppnislögum í núgildandi kerfi. Eins og ég sagði í upphafi hefur þetta verið baráttumál bænda um áraraðir, krafa um að ná sambærilegri hagræðingu og gert var í mjólkuriðnaði fyrir mörgum árum, 2004 held ég, og hefur reynst vel.
Í 13. og 71. gr. búvörulaga eru veittar heimildir til afmarkaðs samstarfs afurðastöðva í mjólkuriðnaði sem að mestu eða öllu leyti eru í eigu mjólkurframleiðenda. Leiddar hafa verið líkur að því að þessi heimild hafi verið forsenda hagræðingar sem skilað hafi bændum og neytendum ávinningi sem nemur milljörðum. Hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson fór hér með töluna 4 milljarða áðan í sinni ræðu og ætla ég ekki að setja neinar efasemdir við þá tölu. Það er sem sagt búið að ná fram hagræðingu í rekstri bænda og afurðastöðva og ná hækkuðu verði til bænda, sem er gott, í mjólkuriðnaðinum og með nýja frumvarpinu var það markmiðið í kjötgeiranum líka.
Það þarf ekki að hafa mörg orð um feril málsins eftir lagasetninguna eins og fram hefur komið hér í ræðum en svo fór að þessi lagasetning var kærð og lögin dæmd ógild með þeim rökum að breytingarnar á milli umræðna hefðu verið það miklar að umrædd lög hefðu ekki fengið þrjár umræður í þinginu. Sú niðurstaða var kærð til Hæstaréttar og bíður málið dómtekningar þar. Því er það undarlegt, virðulegur forseti, að Alþingi ætli að grípa inn í með þessum hætti nú og í raun taka fram fyrir hendurnar á æðsta dómsvaldi landsins og afturkalla lögin áður en dómur hefur verið kveðinn upp um það hvort meðferð laganna hér á Alþingi stenst eða ekki. Það var ekki verið að fjalla um innihald laganna heldur einungis um þá málsmeðferð sem málið fékk í meðförum þingsins. Það hefði farið betur á því að bíða eftir niðurstöðu Hæstaréttar áður en allar ákvarðanir um afdrif laganna eru teknar hér á Alþingi að mínu mati.
Virðulegur forseti. Í núgildandi búvörulögum er einnig ákvæði um endurskoðun. Þar segir:
„Fyrir lok árs 2028 skal ráðherra flytja Alþingi skýrslu þriggja óháðra sérfræðinga á sviði hagfræði og samkeppnisrekstrar um reynsluna af framkvæmd undanþágureglu 71. gr. A og meta áhrif hennar m.a. með hliðsjón af markmiðsákvæðum laganna. Meta skal sérstaklega hver ávinningur bænda og neytenda hefur verið.“
Því spyr ég, virðulegur forseti: Er það ekki skynsamlegt að sjá hver áhrifin verða og bíða eftir endurskoðuninni 2028 og taka þá ákvörðun um hvort lögin hafi náð markmiðum sínum eða ekki, byggja ákvörðunina á upplýstri og tölulega rökstuddri greiningu í stað þess að rjúka af stað og afturkalla lögin áður en reynslan sýnir okkur hvernig þau hafa reynst bændum, afurðastöðvum eða neytendum? Slíkt er óráð að mínu mati, virðulegur forseti.
Það er öllum ljóst að staðan í sauðfjárrækt á Íslandi er grafalvarleg og hefur verið um langan tíma. Tilgangur breytinganna sem gerðar voru á búvörulögum á síðasta löggjafarþingi er m.a. að stuðla að framförum og aukinni hagkvæmni í búvöruframleiðslu, vinnslu og sölu búvara til hagsbóta fyrir framleiðendur og neytendur. Þá er tilgangur laganna að kjör þeirra sem landbúnað stundi verði í sem nánustu samræmi við kjör annarra stétta og stuðli að jöfnuði milli framleiðenda í hverri búgrein hvað varðar afurðaverð og markað.
Þá er í gildandi lögum lagt til að fylgt sé eftir þeim markmiðum búvörulaga að stuðla að framförum og aukinni hagkvæmni í búvöruframleiðslu og vinnslu og sölu búvara til hagsbóta fyrir framleiðendur og neytendur. Með öðrum orðum, með aukinni hagkvæmni í slátrun megi draga úr kostnaði við framleiðslu sem er afar mikilvægt við þær erfiðu aðstæður sem uppi eru í íslenskum landbúnaði í dag.
Á undanförnum árum hefur rekstur kjötafurðastöðva í landbúnaði verið mjög erfiður, eins og ég kom inn á áður, einkum þó varðandi slátrun og vinnslu sauðfjárafurða. Samkvæmt greiningu Deloitte frá því í apríl 2021 má skapa umtalsverðan ávinning með hagræðingu og endurskipulagningu á rekstri innlendra sláturleyfishafa í slátrun og kjötvinnslu stórgripa og sauðfjár. Er það metið að rekstrarhagræðingin við samþjöppun afurðastöðvanna geti numið á bilinu 0,9–1,5 milljörðum króna og losað um bæði fjárskuldbindingu og lækkað fjárfestingarþörf til framtíðar.
Virðulegur forseti. Á árinu 2020 hafði meðaltal nýtingar af sláturgetu einungis numið um 61% í sauðfjárslátrun og 31% í slátrun stórgripa. Því er algerlega ljóst að það er umtalsverð umframgeta í greininni. Frá þeim tíma hefur fjöldi sauðfjár er kemur til slátrunar dregist saman um 11,5% og má leiða líkur að því að nýtingarhlutfallið hafi lækkað í samræmi við það. Fækkun á sláturfé leiðir af sér að sláturhúsin eru of mörg og því nauðsynlegt að ná fram hagræðingu í slátrun, hækkun á afurðaverði til bænda og stemma stigu við hækkun út á markaðinn. Það, virðulegur forseti, er kjarninn í innihaldi þess frumvarps til laga sem ríkisstjórnin ætlar nú að kalla til baka.
Allir flokkar á Alþingi hafa tekið undir með bændum um mikilvægi þess að lagfæra kjör bænda sem standast á engan hátt samanburð við önnur störf í landinu. Slíkt leiðir af sér að nýliðun verður lítil, meðalaldur starfandi bænda hækkar og framleiðsluvilji minnkar, innlend matvælaframleiðsla dregst saman, fólki fækkar í sveitum landsins og erfiðara verður fyrir þá sem eftir eru að sinna störfum tengdum búrekstri. Fæðuöryggi er því tengt þessari umræðu með beinum hætti en það er annað mál sem mikið hefur verið rætt um hér, m.a. á Alþingi, sérstaklega nú þegar óvissa og ógnir steðja að Evrópu með stríði í Úkraínu og því aldrei meiri þörf en nú að við Íslendingar séum eins sjálfbær og hægt er þegar kemur að matvælaframleiðslu. Því er nauðsynlegt að leita allra leiða til að styrkja grunn íslensks landbúnaðar eins og gert var með breytingu á búvörulögum á síðasta þingi og halda svo áfram í þeirri vegferð, m.a. með því að tryggja að landbúnaðarland haldist áfram í nýtingu, tryggja nýliðun og endurnýja búvörusamninga og tollvernd. Magn kjötvara sem hægt er að flytja til Íslands á tollkvóta jókst töluvert í kjölfar undirritunar tvíhliða samnings við Evrópusambandið um tollfríðindi árið 2007 og aftur umtalsvert með tvíhliða samningum um sama efni 2018. Samkvæmt skýrslu starfshóps sem skipaður var til að skoða út- og innflutningstölur landbúnaðar frá 12. október 2020 var þetta niðurstaðan. Að teknu tilliti til þess sem kemur þar fram má ljóst vera að innlendur landbúnaður, þar með talin kjötframleiðsla, eigi í umtalsverðri samkeppni við erlenda kjötframleiðslu. Það er eitt af því sem hefur gert stöðuna í greininni erfiða.
Virðulegur forseti. Hér setur ríkisstjórnin punkt, ætlar að afturkalla lögin þvert gegn vilja bænda, eins og margoft hefur komið fram í þeirra máli og er algerlega skýrt. Þessi aðgerð er ekki með hagsmuni bænda að leiðarljósi, hún er gegn vilja bænda. Hér virðist ríkisstjórnin ætla að fara í þveröfuga átt en stefnt var að og hún talar um.
Virðulegur forseti. Þetta er risastórt byggðamál sem mun hafa afleiðingar víða á komandi misserum ef þetta nær fram að ganga. Ég skora á hæstv. ráðherra að draga þetta mál til baka og hlusta þannig á íslenska bændur og standa vörð um íslenska framleiðslu, íslenska hagsmuni og hinar dreifðu byggðir landsins.