156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[14:22]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina hér. Við erum að ræða frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum og í raun og veru, eins og hefur fram komið, að leiðrétta það sem miður fór fyrir örlitlu síðan. Þetta mál tengist því auðvitað og meginmarkmið þessa frumvarps sem við erum að ræða hér er að bæta hag neytenda og bænda hér á landi. Þetta er risastórt neytendamál en auðvitað enn stærra hagsmunamál fyrir bændur sökum þess að það skiptir þá miklu máli að geta selt sínar afurðir á góðu verði og fá sem stærstan hluta af því. Þetta er auðvitað risastórt samkeppnismál þegar samkeppnislög yrðu tekin úr sambandi með þessum hætti.

Hér er búið að ræða líka töluvert um það um þá stöðu sem uppi er. Það er mál fyrir dómstólum sem hefur verið nefnt í þessu púlti. Mig langaði að spyrja hv. þingmann um þá afstöðu sökum þess að það er verið að tala um, og hefur verið nefnt hér fyrr í dag, að það sé ótímabært að koma með þetta fram, það sé verið að flýta sér of mikið, m.a. sökum þess að það sé mál í gangi. Má þá túlka afstöðu hv. þingmanns þannig að ef mál er fyrir dómstólum eigi ekki að breyta lögum eða Alþingi eigi ekki að vera að ræða lagabreytingar á þeim tímapunkti? Og síðan, af því að hv. þingmaður víkur að málsmeðferð málsins á síðasta þingi, þá langar mig að spyrja hvort hann telji að sú málsmeðferð hafi verið góð í þinginu sem var hér og málinu í raun og veru þröngvað inn og breytt mikið milli umræðna.