búvörulög.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki betur en að það hafi margoft verið bent á það á síðasta þingi þegar lögunum var breytt að það væri verið að keyra þetta hratt í gegn og miklar breytingar í meðförum þingsins. Síðan má auðvitað færa fyrir því sterk rök að breytingar á búvörulögunum í fyrra hafi leitt til þess að afurðastöð Kjarnafæðis á Blönduósi verði lokað frá og með næsta hausti með þeim afleiðingum að 23 starfsmenn missa vinnuna. En svo virðist sem það sé í trássi við tilmæli Samkeppniseftirlitsins sem sagði afurðastöðvum á liðnu hausti að hætta öllum samrunaaðgerðum á meðan endanlegrar niðurstöðu dómstóla um ólögmæti gildandi búvörulaga væri beðið. Eftirlitið fann sig knúið til þess að minna á þessi skilaboð sín í upphafi marsmánaðar. Í bréfum sem eftirlitið sendi KS og Kjarnafæði Norðlenska sem á SAH Afurðir segir að uppsagnir á starfsfólki geti verið liður í framkvæmd samruna og áréttað að til skoðunar geti komið hvort kaup KS á Kjarnafæði Norðlenska hafi samræmst gildandi lögum í ljósi dóms Héraðsdóms Reykjavíkur.
Ég er ekki alveg sannfærður um að hagur bænda sé nákvæmlega í þessum breytingum á lögunum eins og þær voru gerðar síðast, að þar hafi hagsmunir bænda verið undir, sökum þess að þeirra staða hefur ekki, held ég, styrkst með þeirri breytingu. En spurningin sem ég hef þá núna er: Hefði verið betra að meta áhrif þeirra væntanlegu breytinga sem þetta hefði á samfélagið, á störf og hag bænda betur áður en þeim lögum var breytt síðast?