búvörulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Ég get ekki annað en tekið undir það sem hefur komið fram bæði í þessari ræðu og ræðum á Alþingi síðustu daga, auðvitað hefur maður áhyggjur af þeirri stöðu sem upp er komin á Blönduósi. Það er ekki gott þegar 22 starfsmönnum er sagt upp, alveg eins og við höfðum áhyggjur af því þegar starfsemi Hólmadrangs á Hólmavík var lögð niður. Við getum farið hringinn í kringum landið. Það eru ýmis fyrirtæki sem hafa því miður ekki náð að reka sig og það er mikið högg fyrir samfélögin sem þessi fyrirtæki eru í.
Ég er ekki inni í rekstri Kjarnafæðis Norðlenska en eftir þeim upplýsingum sem ég hef þá var reksturinn með þeim hætti að það væri ekki lengur hægt að standa í þessum rekstri á Blönduósi. Ég hef nú svona tilfinningu fyrir því að það sé algerlega óháð því hvort þessi lög hefðu verið samþykkt eða ekki. Það er náttúrlega mjög ódýrt að fara að tala um að einhverjum í raun og veru dögum eftir að þessi lög voru samþykkt sé ávinningurinn ekki kominn í ljós. Auðvitað er hann ekki kominn í ljós. Auðvitað mun það taka tíma fyrir þessi fyrirtæki að ná fram hagræðingu. Það gerist ekki á einni nóttu. Það veit hv. þingmaður. Þetta er bara eins og í hverjum öðrum rekstri. Þess þá heldur held ég að það sé mjög mikilvægt að við bíðum til 2028 eftir endurskoðuninni eins og ég var að fara hér yfir áðan, þannig að við höfum þá alvöruupplýsingar og alvörugögn um það hvort þessi lög eru að skila markmiði sínu eða ekki.