156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[14:31]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir hans ræðu. Ég er hér með tvær spurningar til hans. Er það rétt að hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson sé að tala máli allra bænda í landinu? Eins og ég heyrði þetta er eins og hann sé að tala um að bændur séu upp til hópa ósáttir við þessa afturköllun. Þetta þarf að komast á hreint. Það skiptir auðvitað máli hvort við erum að tala um ákveðinn hóp innan bændastéttarinnar eða hvern einn og einasta bónda í landinu. Það er auðvitað mjög sérstakt ef svo er því að þessi afturköllun er einmitt til þess að setja betri lög til að gæta hagsmuna bænda, það skýtur því skökku við hér. En önnur spurning er: Mér heyrðist að hv. þingmaður væri ekki að gagnrýna innihald laganna heldur málsmeðferðina. Það breytir auðvitað mjög miklu ef hann er einungis að gagnrýna málsmeðferðina og það að þetta sé á miklum hraða hér í gegn. En kannski misskildi ég hv. þingmann og þá leiðréttir hann það bara. Varðandi endurskoðun þá er ég ávallt talsmaður þess að endurskoða hlutina, láta ákveðinn tíma líða, prófa hlutina og skoða hvernig þeir virka og endurskoða svo. Það frumvarp sem nú er verið að flytja má líka endurskoða eftir ákveðinn tíma og sjá hvað kemur út úr því. Síðan er það þessi sérkennilega óánægja með hraðann, sem talað er um. Af hverju þarf að hraða þessu í gegn? Hraði — það er auðvitað svolítið afstætt. Hér erum við að tala um tvo mánuði, við höfum verið hér í tvo mánuði og sumir vilja meina að það sé ekki mikill hraði. En hvað hangir þar á spýtunni? Hvað er að því að flýta góðu máli í gegn? Það eru flokkar sem standa að ríkisstjórninni sem standa að þessu máli, og það fer bara í sitt ferli. (Forseti hringir.) En því er þessi óánægja með að þetta sé komið hingað tveimur mánuðum eftir að þing hefur störf? Gott væri að fá skýringu á þessu.