búvörulög.
Virðulegi forseti. Takk kærlega fyrir þetta andsvar, hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson. Þetta er áhugavert. Það er líka áhugavert að skoða það, eins og kom fram, að hér eru hagsmunasamtök bænda, Bændasamtökin. Ég er bara að spyrja vegna þess að ég veit ekki nógu mikið um þessa hluti. Ég er að velta því fyrir mér hvort þarna úti sé mögulega hópur af bændum sem er bara engan veginn sáttur við þann málflutning sem hefur átt sér stað frá fulltrúum stjórnarandstöðunnar. Ég prófa að setja mig í þau spor að ég sæti núna heima hjá mér og væri arfabrjáluð yfir því hvernig talað er vegna þess að þetta frumvarp er sérstaklega í þágu hagsmuna bænda, til að gæta þess að ávinningur þeirra sé sem mestur. Þetta er svo ótrúlega sérkennilegt mál. Hér eru bara einhverjir tveir pólar og stundum, með leyfi forseta, ef ég fæ að sletta, þá meikar þessi umræða ekki sens. Það er alveg ótrúlegt að hlusta á hvernig ráðherrann og fleiri hafa presenterað þetta mál og svo kemur hinn armurinn og tekur einhvern veginn allt annan pól í hæðina, bara eins og það sé verið að stórskaða stéttina. Ég vil aftur benda á greinargerð með þessu frumvarpi. Það fer ekkert milli mála að sé ekki þessi afturköllun þá er virkilega verið að leggja drög að því, eða alla vega eru miklir áhættuþættir til staðar, það blikka rauð ljós, að þróunin verði inn í einokun. Og hver græðir á slíku?