búvörulög.
Virðulegur forseti. Á hvaða vegferð erum við? Hvað var verið að reyna að gera? Við erum að reyna að taka framleiðendur á kjötmarkaðnum og setja þá í sömu aðstöðu og þá sem eru að framleiða mjólk, veita þeim sömu heimildir. Það er búið að veita þeim sömu heimildir til hagræðingar. Þetta er nú þegar til staðar hjá mjólkurframleiðendum. Þetta er nú þegar til staðar alls staðar á Norðurlöndunum, þessi undanþága. Við erum ekkert að finna upp hjólið í þessu. Ég skil vel að hv. þingmaður sé áttavillt í umræðunni. Það er alveg rétt að hér eru tveir andstæðir pólar að tala saman og menn sjá þetta frumvarp í gegnum ólík gleraugu. Ég skil það vel vegna þess að hagsmunirnir eru tvenns konar. Ég bara skora á hv. þingmann, ef hún vill fá að vita hve margar fylkingar bænda eru, og hvort þær séu með eða á móti frumvarpinu, til að fara niður í Bændasamtök og tala þar við þá hagsmunaaðila sem þar eru. Talið þið við Bændasamtökin, fáið þið þeirra hlið á málinu. Fáið þið útskýringar frá Bændasamtökunum, frá þeim sem eru að gæta hagsmuna íslenskra bænda. Hvað segja þeir? Hvað vilja þeir og af hverju? Ég held að það yrði mjög upplýsandi ferð fyrir hv. þingmann að heyra beint frá býli hvaða hagsmunir eru þarna undir og hvort Bændasamtökin séu ekki einhuga í þessari skoðun sinni. Ég bara hvet hv. þingmann til að tala við bændur. Þeir eru ekki hættulegir, þeir bíta ekki og hún gæti haft mjög gott af því.