búvörulög.
Frú forseti. Það er búið að vera fróðlegt að hlusta á umræðuna í dag. Ég ætla að leyfa mér að taka undir með hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, ég skil það vel að hv. þingmaður skilji ekki alveg hvert við erum að fara í þessari umræðu. Eins og kom fram í andsvörum mínum við hæstv. ráðherra hér fyrr í dag þá held ég að heilt yfir sé það þannig að við viljum öll sjá innlenda framleiðslu blómstra og að bændur hafi einhvern hag af því sem þeir eru að gera. Ég held að það dyljist engum. En þetta snýst um leiðirnar, hvaða leiðir við förum að markmiðinu.
Vissulega ræðum við hér um frumvarp sem fjallar um að taka úr gildi búvörulög, nr. 30/2024, og síðan ætlar ráðherra að koma í framhaldinu með nýtt frumvarp. Það hefur verið haft hér á orði að það frumvarp sem um er rætt hafi tekið miklum breytingum. Jú, vissulega gerði það það. En það verður að hafa það í huga að þegar frumvarpið var tekið til vinnslu innan hv. atvinnuveganefndar þingsins þá kom það bara í ljós að það náði ekki takmarki sem upp var lagt með þannig að markmið ráðherrans náðust ekki með óbreyttu frumvarpi. Sauðfjárbændur og nautgripabændur stóðu alfarið utan við. Ef við hefðum borið gæfu til þess árið 2004 að fara svipaða leið og var farin varðandi Mjólkursamsöluna þá værum við á allt öðrum stað varðandi eignarhlut bænda í framleiðslufyrirtækjum. Sú staða er ekki fyrir hendi í dag.
Ég veit það að hæstv. atvinnuvegaráðherra mun leggja sig allan fram við að reyna að koma með nýtt frumvarp sem nær utan um þennan þátt en hafandi verið í þeirri vinnu sem við vorum í í fyrra ásamt hæstv. atvinnuvegaráðherra, sem þá var hv. þingmaður, þá var nú þetta leiðin sem var farin og sitt sýnist hverjum um það. En ástæðan fyrir þessu öllu saman er sú að við erum hér með breytta mynd á landinu. Gríðarlegar breytingar hafa átt sér stað varðandi framleiðslu á landbúnaðarafurðum. Bændum hefur fækkað og sömuleiðis hefur sláturdýrum fækkað, sérstaklega í sauðfé og nautgripum. Við getum farið aftur til ársins 2000, virðulegur forseti. Þá voru starfandi á landinu rétt um 18 sauðfjársláturhús. Þá var farið í mikið átak til að reyna að draga úr kostnaði. Það var gert með hjálp hins opinbera varðandi úreldingarbætur og annað. Við skulum ekki gleyma því að á tiltölulega stuttum tíma hefur sauðfé fækkað. — Mikið gleður mig að sjá hæstv. atvinnuvegaráðherra koma inn í salinn. Sauðfé hefur fækkað alveg gríðarlega á þessum tíma. Á 40 ára tímabili hefur sauðfé fækkað um 600.000 vetrarfóðraðar kindur rétt rúmlega. Í dag eru þær um 370.000. Þannig að það er gríðarleg ónýtt fjárfesting, fjárfesting sem ekki er verið að nýta til að framleiða afurðir af þessum gripum og þar af leiðandi þurfa að vera einhverjar heimildir til þess að ná saman um það hvernig við náum niður kostnaði við þessa framleiðslu.
Það er áhugavert að sjá að hvernig þróunin hefur verið í verðmyndun á afurðum frá árinu 2017. Það var gríðarlegt verðfall árin 2016–2017 og það var algjört hrun í greininni. Síðan hefur svo sem leiðin legið upp á við. Það hefur átt sér stað ákveðin hagræðing. Ákveðnum sláturhúsum hefur verið lokað þrátt fyrir að þessi búvörulög væru ekki komin í gildi. Ég tek sem dæmi sláturhúsið á Höfn í Hornafirði sem rekið var þá af Norðlenska, því var lokað, sláturhúsi á Vopnafirði sömuleiðis. Síðan var sláturhús í Búðardal, bara svo eitthvað sé nefnt. Þetta hefur tekið gríðarlegum breytingum vegna þess að það er verið að reyna að ná niður kostnaði.
Hér hefur sömuleiðis verið nefnd sameining Kjarnafæðis og Norðlenska og sá sem hér stendur þekkir það nú svo sem nokkuð vel og ágætlega hvernig það gekk fyrir sig, margra ára ferli, tók hátt í þrjú ár að koma þeim fyrirtækjum saman á grunni þeirrar samkeppnislaga sem í gildi eru og við þá sameiningu varð til mikil hagræðing. Við skulum átta okkur á því að þessi tvö fyrirtæki voru á þeim stað að þau voru svona tæknilega við það að verða gjaldþrota. En þarna varð viðsnúningur. Og það þarf að halda áfram og til þess að geta tekið fleiri skref þá þarf að hafa þær heimildir sem um er rætt í því frumvarpi sem varð að lögum nr. 30/2024, til þess að ná fram þessari hagræðingu sem um er rætt.
Mér finnst ekki vera góður bragur á því að við séum að blanda hér inn í þessa umræðu sláturhúsinu á Blönduósi, þ.e. SAH afurðum. Það er klárlega bara eign félagsins KN eða Kjarnafæðis Norðlenska og þarna hefur verið mjög erfiður rekstur í gegnum tíðina og það er alltaf sorglegt að sjá eftir störfum og annað en þetta er bara því miður staðan sem við þekkjum svo vel varðandi það hvernig hlutirnir breytast. En það koma væntanlega ný tækifæri í staðinn. Við þekkjum þetta úr sjávarútveginum, þekkjum þetta í öllum geirum. Ég sagði í upphafi minnar ræðu að það hefðu verið um 18 sauðfjársláturhús árið 2000 þannig að breytingin hefur verið gríðarleg.
Að svo sögðu þá er það nú einu sinni svo að verð til sauðfjárbænda hefur hækkað um rétt um 90% frá árinu 2017 en vísitala lambakjöts, frá afurðastöð til heildsala, er rétt tæplega 70%. Þannig að við skulum bara halda okkur við þær staðreyndir sem þar eru. Bændur hafa notið góðs af því sem hefur verið gert en ég minni á það að sú hagræðing og þau lög sem tóku gildi síðastliðið vor — hagræðingin í þeim geira var bara rétt að byrja í lok síðustu sláturtíðar. Það er nú einu sinni þannig að ráðningarsamband fyrirtækis við starfsfólk sem kemur erlendis frá, sem er að vinna í sláturhúsum, á sér margra mánaða aðdraganda og þegar lögin taka gildi þarna um mánaðamótin mars/apríl þá er í sjálfu sér búið að ganga frá ráðningarsambandi við þá aðila þannig að sú hagræðing átti sér ekki stað þá. Þar af leiðandi, í kjölfar sláturtíðar, fóru þessir aðilar að velta fyrir sér hvernig hægt væri að ná fram frekari hagræðingu í þessum geira. En síðan kom héraðsdómurinn og við þekkjum þá sögu og þar með stöðvaðist sú hagræðing sem var komin af stað.
Það verður að hafa það í huga að fyrir þeim verðhækkunum sem sauðfjárbændur fengu t.d. á sínu innleggi í haust var ekki innstæða í rekstri fyrirtækjanna. Fyrirtækin höfðu horft til þess, og það kemur ágætlega fram í fréttabréfi sem Ágúst Þór Hauksson, framkvæmdastjóri Kjarnafæðis Norðlenska, sendi frá sér núna á dögunum, varðandi þá hækkun sem varð á afurðaverði til bænda, að hún byggði á því að hagræðingin væri fram undan og síðan var haldið í sér varðandi það að reyna að koma hækkunum út á markaðinn. Þetta er staðan.
Hér hefur verið rætt vítt og breitt um það hvort hér sé verið að flýta sér eða eitthvað annað. Ég ætla ekki að leggja dóm á það. Ég ætla ekki að leggja dóm á það hvort við vöknum upp Framsóknarmenn á morgnana eða hvort við séum í Viðreisn. Þetta snýst ekkert um það. Þetta snýst um það hvernig við viljum nálgast verkefnið og ég hef alveg trú á því. Nú hef ég átt alveg gríðarlega gott samband og samvinnu við hæstv. atvinnuvegaráðherra og við höfum unnið mjög þétt saman og gerðum það hér á síðasta kjörtímabili þó að við værum ekkert alltaf sammála. En markið er það sama og ég held að markmið okkar allra sé það sama. Þetta er bara spurning um leiðirnar að markmiðinu og hver sé rétta leiðin.
Ég vil í lok ræðu minnar koma með ábendingu til hæstv. matvælaráðherra og atvinnuvegaráðherra sem við þurfum að hafa í huga vegna þess að í lögum nr. 30/2024 eru gerð ákveðin skilyrði. Það eru skilyrði sett sem ekki eru þá í gildi núna sem snúa að söfnunarskyldu, þ.e. að markaðsráðandi aðilar þurfi að þjónusta litla aðila. Þau eru ekki til staðar eins og þetta er í dag og það er umhugsunarefni. Ég get alveg skilið að menn vilji endurskoða og koma með eitthvað annað í staðinn. Það er gott. En við skulum ekki skilja hlutina eftir í lausu lofti vegna þess að við viljum halda byggð á öllu landinu og það eru bændur á okkar ystu annesjum og ef þessi kvöð er ekki til staðar þá er alltaf hættan sú að farin verði sú leið að segja: Nei, við nennum ekki að ná í kindurnar til Gunna á Hvoli eða hvað sem við segjum eða fara út á Dalatanga eða Ingjaldssand. Þetta verðum við að horfa á. Ég hvet hæstv. ráðherra til að reyna að hafa belti og axlabönd í þessu og væntanlega verður það tekið til kostanna í vinnu atvinnuveganefndar og atvinnuveganefnd á sér sögu um að geta tekið svolítið á málunum, það er nú bara einu sinni þannig. En þetta er mjög mikilvægt atriði og við höfum horft til þess. Í umsögnum og á öllum bændafundum, við erum nú rétt búin að vera í kjördæmaviku með öllu því sem því fylgir, þá koma alveg skýr skilaboð frá Bændasamtökum Íslands, frá Samtökum ungra bænda og meira að segja Samtökum smáframleiðenda vegna þess að þegar skilyrðin eru til staðar þá verður markaðsráðandi aðili að þjónusta litla aðila. Það er skrifað inn í lögin sem núna eru í uppnámi. Beint frá býli er mikill vaxtarbroddur til sveita og til þess að það geti haldið áfram að þróast þá verður þessi stóri aðili, hver sem hann er, að hafa skilyrði um að þjónusta viðkomandi aðila. Það er í hlutarins eðli þannig — segjum sem svo að þú slátrir einhverjum 100 lömbum og ég vil bara fá lærin heil (Gripið fram í.) þá semur þú um það, til þess að reykja þau. Síðan eru hliðarafurðir og aukaafurðir sem eftir verða. Þarna verðum við að passa okkur og ég efa það ekki að hv. atvinnuveganefnd fari ofan í saumana á því.
En, virðulegi forseti, tími minn er nú á þrotum. Ég gæti svo sem talað hér í allan dag en ég held að það sé ekki gott fyrir neinn. (Forseti hringir.) Umræðan hefur verið bara góð í dag og þó að við séum á sitthvorum pólnum þá er mjög mikilvægt að taka þessa umræðu á dýptina.