156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[14:56]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir prýðisgóða ræðu og tek skilaboðin klárlega til mín. Markmiðið er það að við ætlum að vinna að hag bænda og neytenda í þessum geira.

Mig langar aðeins að spyrja í fyrra andsvari, af því að hv. þingmaður kemur inn á sameiningu Kjarnafæðis og Norðlenska árið 2021, sem var mikilvæg fyrir þessi tvö fyrirtæki sem stóðu illa og sem var samþykkt af Samkeppniseftirlitinu í ljósi aðstæðna. Þannig að ég velti því upp, og þetta er kannski samtal sem hefði betur farið á, ef við hefðum haft tíma til, að ræða í atvinnuveganefnd á síðasta ári: Hvernig eru aðstæður breyttar núna? Af hverju treystir hæstv. ráðherra því ekki að sama hefði gerst með aðrar sameiningar innan ramma samkeppnislaganna? Það var búið að sýna sig að þetta gekk upp. Undanþágan var til staðar þegar um er að ræða fyrirtæki sem þurftu nauðsynlega á því að halda að hagræða og sameinast. Það gekk innan þágildandi laga. Af hverju var þessi breyting nauðsynleg og síðan tilheyrandi sameiningar eða kaup í kjölfarið?