156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[14:59]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég get alveg tekið undir það, það er hægt að segja að þetta hafi tekið fulllangan tíma og kostað fullmikið, ef þetta eru tölurnar. Ég er hins vegar sannfærð um að því er hægt að breyta án þess að kippa Samkeppniseftirlitinu og samkeppnislögum úr sambandi, sem, eins og hefur svo sem komið fram í umræðunni, eru skiptar skoðanir um.

Mig langaði aðeins að nefna, vegna þess að það hefur verið töluvert í umræðunni hér að það er verið að gagnrýna að hér sé þessi flýtir á málinu og einhver hv. þingmaður bar það jafnvel saman við flýtinn á afgreiðslu breytingartillagna. Ég trúði eiginlega ekki mínum eigin eyrum vegna þess að hér erum við að leggja fram mál í 1. umræðu einhverjum vikum, rúmum mánuði eftir að þing kemur saman en þó nægilega snemma til að hv. atvinnuveganefnd hefur nægan tíma til að fara yfir málið. Það er nefnilega þannig að þegar KS keypti Kjarnafæði Norðlenska 2024 á grunni þessara breytinga þá voru skiptar skoðanir meðal bænda um það. Og af hverju var það? Menn voru óvissir vegna þess að það gafst ekki nægur tími til að safna upplýsingum og vinna málið í þinglegri meðferð.

Nú er ég sem ráðherra að leggja fram þetta mál hér til að það gefist tími til að skoða þetta og ég treysti því bara að hv. atvinnuveganefnd fari vel ofan í málið og komist að góðri niðurstöðu, bændum og neytendum til heilla.