búvörulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Varðandi hækkun á verði til neytenda þá fór ég, held ég, nokkuð ítarlega yfir það í ræðu minni hér áðan, þ.e. hvað varðar hækkun á afurðaverði til bænda, og sömuleiðis það að sú hækkun hefur ekki haldist í takti við það sem hefur farið út á markaðinn þrátt fyrir breytingar á kjarasamningum og öllu sem því fylgir. Staðan er tiltölulega einföld. Annaðhvort er það þannig að þú lækkar verð á innkeyptri vöru; ef þú ætlar að hækka það þá þarftu að hækka útsöluvöru eða þriðji kosturinn er að hagræða alveg inn að beini til þess að reyna að halda verði niðri og halda þá uppi verði til frumframleiðenda. Hvort það hafi verið markmið laganna að KS keypti Norðlenska — skildi ég spurninguna rétt? (Gripið fram í: Já.) Nei, það var ekki markmið laganna.