156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[15:05]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (andsvar):

Forseti. Það var ekki markmið laganna að KS myndi kaupa Kjarnafæði-Norðlenska. En þegar lögin voru samþykkt, í mars 2024, þá gerist það strax í júlí, sem við óttuðumst að myndi gerast, að Kaupfélag Skagfirðinga kaupir Kjarnafæði-Norðlenska og gerir síðan strax í nóvember samning um kaup á B. Jensen. Það virðist sem svo að strax í kjölfarið á því að þessi lög fara í gegn, með þeim hætti að héraðsdómur hefur dæmt þau ólög — ég vil kannski spyrja hv. þingmann varðandi tímarammann sem það tók að sameina Kjarnafæði og Norðlenska og SAH. Samkvæmt því sem ég hef skoðað þá er þessi sameining lögð fyrir Samkeppniseftirlitið í júlí 2020. Hún var samþykkt í apríl 2021, eða tíu mánuðum seinna, með skilyrðum (Forseti hringir.) sem tók síðan tvo mánuði að uppfylla. Tvö ár af þessum þremur, sem hv. þingmaður fullyrti um, fóru í beinar viðræður á milli eigenda.