156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[15:07]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Forseti. Það er hárrétt, hv. þingmaður, að ferlið tók þrjú ár. Sú vinna sem átti sér stað átti sér sömuleiðis stað í köflum með Samkeppniseftirlitinu; það voru gerðar tvær tilraunir ef ég man þetta rétt. Þetta var þriggja ára ferli frá því að félögin byrjuðu að þreifa hvort á öðru og þangað til farið er til Samkeppniseftirlitsins. Síðan var tekið hlé og síðan var gerð önnur tilraun. Ég vil ekki fullyrða, þetta getur runnið saman, en svona er það í minni minningu. Samtals eru þetta rétt um þrjú ár.