156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[15:08]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir ræðuna hér áðan. Hann leggur gott eitt til og ég fagna því að hann leggur svolitla áherslu á það að við þurfum að geta átt gott samtal um landbúnaðinn án þess að þetta festist í skotgröfum og ég get nú tekið það fram að ég og hv. þingmaður erum alla jafna miklir mátar hér í þinginu. En ég hef svo sem líka alveg verið hreinskilinn með það þegar málinu var breytt hér á sínum tíma og samkeppnislögunum kippt úr sambandi að mér misbauð svolítið vinnubrögðin við það. Nú liggur fyrir héraðsdómur, alveg skýr, um að það var brot gegn stjórnarskránni. Það voru margs konar aðvaranir í aðdragandanum, frá Neytendasamtökunum, frá Alþýðusambandinu, frá Samkeppniseftirlitinu, frá félagasamtökum og hagsmunasamtökum atvinnurekanda og svo hér inni í þinginu. Mig langar bara að spyrja: Var ekki ofur einfaldlega, í ljósi þessa alls, gengið of langt?