búvörulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína góðu spurningu. Það er alveg rétt að það var töluverður hávaði í kringum það og aðvaranir frá ákveðnum aðilum í þessari vinnu þegar þetta kemur fram. Mig langar, virðulegur forseti, að nýta tækifærið fyrst við erum komin þangað til að segja varðandi þennan tímafaktor sem átti sér stað að það var þannig að nefndaráliti var dreift til minni hluta á fimmtudegi. Það liggur hjá minni hlutanum fram á mánudag. Núverandi hæstv. ráðherra skráir sig á málið. Síðan tökum við umræðu 18. mars og 19. mars er tekist á um málið og þá koma þessar athugasemdir utan að frá hinum ýmsu hagsmunasamtökum. Það sem ég vil segja í þessu er að ég tel að sú vinna sem er búin að eiga sér stað varðandi það, (Forseti hringir.) sömuleiðis meðal þingmanna — auðvitað vissi (Forseti hringir.) sá sem hér stendur að það yrði gagnrýnisvert (Forseti hringir.) hjá ýmsum hagsmunasamtökum úti í bæ — ég biðst afsökunar, virðulegur forseti — auðvitað vissi ég, búinn að standa í þessu í mörg ár, að þessi gagnrýni myndi koma, við vissum það. (Forseti hringir.) En við gáfum okkur ágætan tíma sömuleiðis.
(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar það við hv. þingmenn að virða ræðutímann.)