búvörulög.
Frú forseti. Mér fannst hv. þingmaður skauta aðeins fram hjá spurningunni. Það hefur verið bent á það að þegar búið var að gera breytinguna hér í miðri þinglegri meðferð þá hafi í raun og veru fátt staðið eftir af þingmálinu sem upphaflega var lagt fram annað en málsnúmerið. Það var búið að breyta öllum efnisatriðum málsins þannig að það hefur ekki staðist skoðun héraðsdóms, svo það sé ofur einfaldlega sagt. Þannig að við hljótum auðvitað að hafa það svolítið í huga og þetta mál sem hér er að koma fram er öðrum þræði að bregðast við því.
En mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki áhyggjur af því að ef aðilar afurðastöðva geta sameinast og unnið með þeim hætti sem ætlast var til og samþykkt var hér í þinginu þá geti komið upp einokunarstaða, alger einokunarstaða þar sem bændur eru undir hælnum, rétt eins og neytendur, á einokunaraðila. Svo ég vísi nú í ræðu sem hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson flutti hér fyrr í dag þá séu bændur aftur komnir í þá stöðu sem þeir voru í á sínum tíma gagnvart kaupmanninum; það er einn aðili sem ræður verðinu og bændur geta ekki hreyft sig innan þess.