búvörulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða spurningu. Ég held að það sé því sem næst útilokað að tvö samvinnufélög geti sameinast. Það er nú það sem eftir stendur ef við myndum fara alla leið, þ.e. Sláturfélag Suðurlands og Kaupfélag Skagfirðinga á þessum markaði. Síðan eigum við eftir önnur fyrirtæki eins og Matfugl, Stjörnugrís og Ísfugl, svo eitthvað sé nefnt. Ég vil minna á það sömuleiðis að það er endurskoðunarákvæði 2028 hvað þetta varðar. Það eru sömuleiðis skrifaðir inn í lögin fjórir þættir þar sem markaðsráðandi aðili verði að þjónusta minni aðila. Ég fór ágætlega yfir það hér í ræðu áðan. Þetta er vandmeðfarið en í ljósi þess að við erum í lifandi heimi, við erum með flutninga hér fram og til baka, þá er samkeppnin fyrst og fremst erlendis.