156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[15:14]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skal vera stuttorður og ég ætla svolítið að höggva í sama knérunn og hæstv. atvinnuvegaráðherra hér áðan í sínu andsvar. Mig langar til að spyrja hv. þingmann, um leið og ég þakka honum kærlega fyrir hans ræðu og málefnalegu umræðu, og stutta spurningin er: Af hverju geta ekki samkeppnislög bara gilt um þetta? Og ef ekki — hv. þingmaður hefur svarað því á ákveðinn hátt og bent á undanþágureglu 15. gr. sem er undanþága frá banni 10. og 12. gr. — hefði þá ekki verið nær að fara í það að aðlaga regluna til þess að samkeppnislög gætu gilt a.m.k. að einhverju leyti um afurðastöðvarnar?