156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[15:15]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni kærlega fyrir góða spurningu. Þegar fyrst var farið að þreifa á þessu máli hér fyrir tíu árum síðan eða eitthvað svoleiðis þá var verið að fjalla um þetta — og það kom fram í ræðu hv. þm. Sigurðar Inga Jóhannssonar hér fyrr í dag að þegar við tökum inn þessi samkeppnislög 1993, ef ég man rétt, þá smíðum við ekki inn þær undanþágur sem eru smíðaðar inn í samkeppnislög í nágrannalöndum. Mér skilst, og nú er ég ekki löglærður einstaklingur, á þeim sérfræðingum sem ég hef talað við að það sé ansi snúin leið að fara að breyta og laga til í þessum samkeppnislögum, að mér skilst, og þar af leiðandi er verið að fara þessa leið sem er farin hér í dag.