156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[15:16]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Mig langar til að halda því fram að jafnvel þótt hann sé ekki löglærður þá er hann alveg örugglega lögvís, enda hluti af löggjafarvaldinu. Þess vegna langar mig til að halda áfram með þessa spurningu og aðeins að bæta í forsendurnar. Í svari hv. þingmanns áðan við spurningu hæstv. atvinnuvegaráðherra þá kom fram kostnaðurinn. En er það ekki bara kostnaðar allra sem er undir samkeppnislögum þegar kemur að samruna og verða ekki bara allir aðilar sætta sig við hann? Er þá ekki bara frekar hægt að láta samkeppnislög gilda en — og þetta er að einhverju leyti sama spurningin — aðlaga þau þannig að þau geti náð líka yfir kjötafurðastöðvar?