búvörulög.
Virðulegur forseti. Það hefur verið virkilega fróðlegt að hlusta á umræðuna hérna í dag. Eins og einhver ykkar vita þá er ég fædd og uppalin í blómlegu landbúnaðarhéraði í Borgarfirði á Vesturlandi. Foreldrar mínir voru bændur og brugðu búi 2019. Þau voru sem sagt sauðfjárbændur, brugðu búi 2019 og ég hef raunar ekki getað farið í réttir síðan, það var svo sárt að sjá kindurnar fara, engar kindur lengur merktar M.14. Það sem dró mig í raun og veru hingað inn á Alþingi eru ræturnar. Það eru ræturnar í sveitinni. Mér hefur þótt svo óskaplega erfitt að horfa upp á hvernig byggðin hefur dregist saman í sveitum landsins, þar með talið minni eigin sveit, og það er í raun og veru ástæðan fyrir því að ég tók mér leyfi frá sendiherrastörfum til að stofna íslenskan fæðuklasa og síðan var ég kjörin hér á Alþingi Íslendinga. Það er þetta um mikilvægi innlendrar fæðuframleiðslu. Það er þetta um stöðu landbúnaðarins.
Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart, virðulegur forseti, að þessi ríkisstjórn skuli leggja fram þetta frumvarp. Flokkarnir sem hana skipa hafa ekkert sérstaklega verið þekktir, alla vega hingað til, fyrir skilning á íslenskum landbúnaði, samstarfs- og samkeppnisumhverfi bænda. Íslenskir bændur standa í harðri samkeppni við innfluttar verksmiðjuframleiddar vörur þar sem alþjóðleg stórfyrirtæki stýra framleiðslunni meira og minna. Sumir af heildsölum landsins, hef ég heyrt, hafa raunar þrýst mjög á að þeim verði gert auðveldara með að flytja inn landbúnaðarvörur án þess að skeyta nokkuð um áhrif þess á íslenska matvælaframleiðslu, fæðuöryggi þjóðarinnar og þar með hagsmuni neytenda.
Lög þau sem þetta frumvarp beinist gegn voru samþykkt af Alþingi og staðfest af forseta Íslands. Ferill laganna á Alþingi á sér eflaust fordæmi og þau teljast því varla ólöglega unnin þótt eflaust megi deila um vinnulagið.
Það sem ég undrast mest við frumvarp þetta er ekki að það sé komið fram, ekki hvernig það er fram sett heldur tímasetningin. Mér finnst í raun ótrúlegt að ríkisstjórnin skuli með þessum hætti gera tilraun til að grípa inn í dómsmál, að því er mér virðist, sem er í gangi en Hæstiréttur mun á næstunni taka fyrir hvort lögin sem um ræðir hafi verið sett með eðlilegum hætti. Ég er þeirrar skoðunar að Hæstiréttur eigi að fá að ljúka umfjöllun sinni áður en ríkisstjórnin afnemur lög sem rétturinn fjallar um. Það má raunar spyrja sig hvort ríkisstjórnin óttist niðurstöðu Hæstaréttar, ég vona ekki, og sé með þessu að vonast til að rétturinn vísi málinu frá þar sem lögin sem um ræðir hafi verið felld úr gildi. En auðvitað hef ég hlustað á skýringar hv. stjórnaralþingismanna og hæstv. ráðherra hér í dag í þessari umræðu, ég á bara eftir að melta það sem fram hefur komið.
Það skiptir auðvitað mestu í allri þessari umræðu um lögin og þetta frumvarp hvert markmið laganna var. Markmiðið var að auðvelda hagræðingu í framleiðslu á kjöti til að styrkja rekstur bænda og tryggja áframhaldandi gæðavörur á sanngjörnu verði til neytenda. Við þekkjum þá grundvallarbreytingu sem varð, eins og raunar fleiri hafa komið inn á í dag, þegar mjólkurbændum var heimilað að vinna saman. Ég vil segja að það hafi verið heillaspor. Það hefur styrkt grunn mjólkurframleiðslu á Íslandi, tryggt neytendum vöruframboð, aukið vöruþróun og fjárfestingar í tækni. Bændur sem framleiða mjólk standa nú mun betur en áður því þeir uppskera meira fyrir sína framleiðslu. Með því að leyfa samstarf, samruna og hagræðingu í framleiðslu á kjöti má búast við að þróunin verði svipuð og hjá mjólkurbændum. Er það ekki bara frábært? Ég myndi segja það.
Ekki má heldur gleyma því að íslenskur landbúnaður er í mikilli samkeppni við innflutt matvæli þar sem við vitum raunar lítið eða jafnvel ekkert um raunverulegan uppruna, lyfjanotkun við framleiðslu eða aðbúnað dýra. Okkar örsmái landbúnaður getur ekki keppt við verksmiðjubúskapinn á sanngjörnum grunni. Stærðarmunurinn er einfaldlega of mikill. Því megum við ekki fara þá leið að gera okkur háð innfluttum matvælum sem e.t.v. er hægt að bjóða ódýrt um tíma því að það mun leiða til hruns í íslenskri framleiðslu og vega að fæðuöryggi þjóðarinnar. Ég trúi því ekki að það sé vilji ríkisstjórnar Íslands, ég bara neita að trúa því. Það er hlutverk íslenska ríkisins, hlutverk hverrar ríkisstjórnar, að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar. Það er ekki gert með innflutningi sem getur lagst af á einni nóttu vegna stríðsátaka, tollastríðs stórvelda, hömlum á flutningum, sjúkdóma, verðstríðs o.s.frv. Eina leiðin til að tryggja fæðuöryggi er að tryggja innlenda framleiðslu. Liður í því er að öflugur landbúnaður þrífist um allt land og liður í því er að skapa hagstætt rekstrarumhverfi framleiðanda.
Virðulegur forseti. Ég tel að áður en lengra er haldið með þetta þingmál eigi hæstv. ráðherra, í þágu hagsmuna bænda, að leita leiða til að finna lausnir með samtali við hagsmunaaðila, þar með talið bændur. Það er óumdeilt að hagræða þarf í kjötframleiðslu á Íslandi svo framtíð bænda og fæðuöryggis þjóðarinnar sé sem mest og best tryggt. Hvernig það er gert má vitanlega ræða. Vil ég því hvetja hæstv. ráðherra til að fara skynsamlegu leiðina og kalla til samtals bændur og aðra hagsmunaaðila með það að markmiði að nauðsynleg hagræðing náist sem skili bændum á sama tíma traustari grunni. Jafnframt vil ég hvetja hæstv. ráðherra til að bíða niðurstöðu Hæstaréttar áður en hún heldur lengra með þetta mál.