búvörulög.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna hér og hún var mestu, fannst mér, nokkuð málefnaleg þótt það sé augljóslega svo að flokkurinn sem hv. þingmaður er í og minn flokkur erum ekki sammála um efnisatriði í mörgu af því sem verið er hér að fjalla um og er undir í þessu máli. En mér finnst svolítið þurfa að halda því til haga að það er mín skoðun að allir flokkar á þingi bera hag bænda fyrir brjósti og við hljótum öll líka að vera að hugsa um hag neytenda. Mig langar svolítið að hafna þeim orðum sem komu fram hjá hv. þingmanni þess efnis að flokkurinn sem ég er í, Viðreisn, og flokkur hæstv. atvinnuvegaráðherra hafi einhvern veginn ekki neinn skilning á stöðu bænda eða vilji tala hag þeirra niður. Það er ekki málið. Okkur greinir bara á um leiðirnar að því að bæta hag bænda og við erum ekkert endilega sammála um það hvert umhverfið eigi að vera og það er bara gott og blessað.
Það var farið hérna aðeins yfir það að það hefur miklu skipt hvert markmið laganna var sem nú er verið að fella úr gildi með þessu frumvarpi. En markmiðið eitt og sér er ekki nóg þegar vinnubrögðin við lagasetninguna eru með þeim hætti að meira að segja dómstólar stíga niður fæti og segja: Hér var verið að brjóta stjórnarskrá. Í því ljósi langar mig að spyrja hv. þingmann og í ljósi alls aðdragandans að málinu hvort það sé ekki full ástæða til þess að bregðast svolítið vel við þessum héraðsdómi, algerlega óháð hæstaréttardómnum, vegna þess að áður en héraðsdómurinn féll var margbúið að vara við þessari lagasetningu og þessum miklu breytingum sem voru gerðar hér við meðferð málsins af alls konar hagaðilum; Samkeppniseftirlitinu, Alþýðusambandinu, Neytendasamtökunum. (Forseti hringir.) Eru þetta ekki aðilar sem þarf líka að hugsa um og hlusta á, rétt eins og hagsmunasamtök bænda?