búvörulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna og það gleður mig mjög að heyra að hans flokkur beri hag bænda fyrir brjósti. Það gleður mig mjög mikið. Varðandi þennan dóm héraðsdóms þá ætla ég að taka það fram að ég er ekki löglærður einstaklingur, ég er með mastersgráðu í alþjóðasamskiptum. En er staðan ekki þannig að ef Hæstiréttur staðfestir niðurstöðu héraðsdóms, er þá ekki bara komin upp sú staða mögulega að hér þurfi að fara yfir öll lög sem Alþingi hefur samþykkt með tilliti til þess hversu miklar breytingar hafa orðið á milli 1. og 2. umræðu? Ég hef ekki séð neina skilgreiningu á því hversu mikið má breyta lagafrumvörpum á milli umræðna, ég hef ekki séð neinar leiðbeiningarreglur um það þannig að ég bara kalla eftir þeim ef þær eru til. Ég hef ekki séð þær. Ég er þeirrar skoðunar að það sé best fyrir okkur öll að beðið verði eftir niðurstöðu Hæstaréttar.