búvörulög.
Virðulegi forseti. Ég skil alveg hvaðan hv. þingmaður er að koma. Þetta er auðvitað héraðsdómur og Hæstiréttur er fram undan. En í raun og veru, eins og við höfum verið að reyna að útskýra hér í dag, þá er auðvitað verið að gera tvennt. Það er verið að fella úr gildi lög sem flokkarnir sem nú mynda ríkisstjórn töldu mikil ólög. Þessi lög samþykkti þingið og héraðsdómur hefur ákvarðað að það hafi verið stjórnarskrárbrot, þ.e. það hafi ekki verið farið eftir þeim reglum sem kveðið er á um í stjórnarskránni um það hvernig mál eigi að fara hér í gegnum þingið. Það þýðir ofureinfaldlega það að þingið hefur ekki ótakmarkað vald, ráðherra geti ekki lagt fram mál og þingið geti algerlega snúið því við einhvern tímann á seinni stigum vinnslunnar án þess að gestir og hagaðilar hafi fengið að segja sitt um það. Þetta hlýtur auðvitað alltaf að vera, ef ágreiningur er, matsatriði dómstóla á hverjum tíma. Það hvað Hæstiréttur segir breytir ekki þeirri skoðun að þetta eru vond lög. Það er búið að kippa samkeppnisreglunum algjörlega úr sambandi, sem við vorum mjög mikið á móti. Það sem tekur þá við er það ástand sem var áður en frumvarpið var lagt fram síðast og í haust verður lagt fram annað frumvarp sem verður í líkingu við það sem var lagt fram af síðustu ríkisstjórn og þá gefst þinginu tækifæri til þess að fara yfir það mál, mögulega að gera einhverjar breytingar á því sem þó eru innan þess sem stjórnarskráin leyfir. Það eru nú öll ósköpin. Mér finnst verið að þyrla upp svolítið miklu moldviðri í kringum þá aðgerð sem hér er verið að fara fram með vegna þess að í grunninn eru þessir flokkar ósammála því sem gert var hér í breytingum þingsins eins og rækilega hefur komið fram.
Mig langar bara að spyrja: Hefur hv. þingmaður ekki skilning á því sjónarmiði að við erum ofureinfaldlega á að breyta ástandi sem kom með lögum, sem voru að okkar mati ólög?