búvörulög.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu hér áðan að mestu leyti. Mér finnst þó þörf á því að andmæla þeim hluta þar sem mér fannst svolítið dylgjað um skilning okkar á stöðu landbúnaðar og þess hluta samfélagsins. Mig langaði að nýta þetta tækifæri til að segja frá því að þó að ég sé nú höfuðborgarbarn og búinn að búa í höfuðborginni ansi lengi þá er ég samt sveitamaður, kúasmali að vestan nánar tiltekið, þannig að það er alveg þekking í okkar flokkum og þó nokkuð mikil á þessum málum. Ég held ekki að það sé skortur á þekkingu sem valdi þeirri stöðu sem við erum að ræða hérna heldur kannski einmitt mismunandi skoðanir á þessu. En það er alveg þannig að fæðuöryggi, sem var líka nefnt, skiptir auðvitað mjög miklu máli fyrir samfélagið, fyrir neytendur og fyrir landið í heild sinni og ég held að það sé ekkert verið að deila um það. Meginmarkmiðið er að tryggja stöðu bænda og tryggja stöðu neytenda og við viljum auðvitað auka samkeppni hér á landi.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann út í það með hvaða hætti hv. þingmaður telur að skert samkeppni styrki stöðu bænda.