156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[15:37]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Eins og ég sagði hérna í máli mínu áðan þá er það einfaldlega þannig að íslenskur landbúnaður getur ekki keppt við verksmiðjuframleiddar landbúnaðarafurðir erlendis frá. Það er bara ómögulegt. Stærðarmunurinn er svo gígantískur að það bara gengur ekki upp. Við vitum ekkert hvað er í þeim fyrir utan það að við vitum ekkert hvernig matvælin eru framleidd. Ég hef grun um að þau séu til að mynda stútfull af sýklalyfjum. Við getum ekki bara horft á að hlutirnir séu ódýrari, þetta þarf að vera heilnæm fæða sem við erum að bera hérna á borð fyrir landsmenn. Ég er nú þess fullviss að matvæli framleidd á Íslandi eru með mjög litlu magni af sýklalyfjum ef einhverju. Það hljóta að vera miklu meiri gæði í þeim heldur en í matvælum sem eru stútfull af sýklalyfjum erlendis frá. Og það er þannig.

Ég veit ekki hvort ég hef svarað spurningunni.