búvörulög.
Virðulegur forseti. Takk fyrir andsvarið. Og nei, ég held að hv. þingmaður hafi ekki alveg svarað spurningunni, þ.e. með hvaða hætti hún telur að skert samkeppni styrki stöðu landbúnaðar. En mig langaði samt sem áður að varpa fram þeirri pælingu hvort það væri ekki einmitt hægt að fara einhverjar aðrar leiðir til að styðja við landbúnaðinn og ná fram aukinni framleiðslu og bara styrkja stöðu landbúnaðar í heild sinni þá með mögulega einhverjum styrkjum og slíku. Ég held að þessi leið, að takmarka samkeppni afurðastöðva, sé ekki endilega sú leið sem sé best til þess fallin að tryggja það og ná þessu markmiði fram. Ég held að samkeppni í þessu sé góð og að bændur geti hámarkað verð fyrir sína vöru með því að geta valið á milli aðila og það er auðvitað grunnurinn í þessu. En ég ítreka mikilvægi þess að við komum þessu máli alla leið, klárum þetta og að hv. atvinnuveganefnd fái málið til sín til að vinna það áfram. Þetta er gríðarlega stórt hagsmunamál fyrir bændur og fyrir neytendur og til að tryggja aukna samkeppni á þessum markaði eins og annars staðar.