156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[15:41]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég gleymdi að hrósa þingmanninum fyrir þekkinguna sem hann hefur fengið af veru sinni í sveit á ungdómsárum. Spurt er hvort ekki sé hægt að bæta bændum — var ekki spurningin um hvort hægt sé að bæta bændum með einhverjum öðrum hætti upp … Hvernig var spurningin? (KÞS: Styðja betur við bændur.) — Já, hvort það væri ekki hægt að styðja betur við bændur. Viltu fá stutta svarið? Ég ætla koma með stutta svarið. Jú, auðvitað er það hægt; bara koma með 4–5 milljarða til viðbótar og setja þá beint til bænda. Það yrði bara mjög vel þegið. Þannig að ef hv. þingmaður getur kvittað upp á það þá er ég kát.