búvörulög.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, framleiðendafélög. Kannski rétt svona í byrjun vil ég benda á stærðirnar sem við erum að tala um hér. Margir Íslendingar sækja nám til Horsens í Danmörku. Sláturhúsið í Horsens gæti slátrað allri íslenskri ársframleiðslu í svínakjöti, 80.000 grísum, á fjórum dögum. Þetta eru bara stærðirnar, þetta er samkeppnin sem við erum að fást við á þessum markaði í Evrópu.
Með þessu frumvarpi atvinnuvegaráðherra sem við ræðum hér er lagt til að felldar verði brott þær breytingar sem gerðar voru á búvörulögum árið 2024. Með frumvarpi sem matvælaráðherra lagði fram árið 2023 var lagt til að samningar frumframleiðenda landbúnaðarafurða eða félaga þeirra sem uppfylltu ákveðin skilyrði yrðu undanþegnir bannákvæðum 10. og 12. gr. samkeppnislaga án tillits til þess hvort skilyrði 15. gr. laganna væru uppfyllt. Ekki var gert ráð fyrir undanþágum frá ákvæðum laganna um samrunaeftirlit. Það frumvarp sem Alþingi samþykkti árið 2024 veitir aftur á móti slíka undanþágu og gerir félögum sem undir lögin falla kleift að sameinast án þess að ákvæði samkeppnislaga um samrunaeftirlit virkist. Að auki var gildissvið undanþágunnar rýmkað þannig að undir hana féllu ekki lengur aðeins félög að meiri hluta undir stjórn bænda, líkt og upphaflegt frumvarp gerði ráð fyrir, heldur öll félög og samtök félaga sem eru fyrstu framleiðendur kjötafurða og afleiddra afurða og annast slátrun og vinnslu kjötafurða og afleiddra afurða.
Í umsögn VR, SVÞ, FA og Neytendasamtakanna segir að með þessum breytingum séu engar hömlur á að afurðastöðvar sameinist og komi á einokun, þær geti þannig öðlast stjórn á verði þeirra afurða sem bændur útvega sem og verðlagningu til neytenda án aðhalds, samkeppni eða annarra úrræða á borð við opinberar verðlagsákvarðanir eins og þekkist í mjólkuriðnaðinum. Í ljósi framangreinds telur ráðherra nauðsynlegt að leggja til lagabreytingu sem færi búvörulög aftur til fyrra horfs. Samhliða því stendur yfir vinna við nýtt lagafrumvarp sem miðar að því að tryggja að innlendir framleiðendur hafi ekki lakara svigrúm til hagræðingar og samstarfs en gengur og gerist í nágrannalöndum líkt og markmiðið var með frumvarpi matvælaráðherra árið 2023 og í samræmi við landbúnaðarstefnu til ársins 2040, sem við samþykktum hér í þinginu, að mig minnir, árið 2021. Gott plagg.
Aðeins um athugasemdir við frumvarpið. Ég ætla að benda á að Samkeppniseftirlitið hefur lengi talið áform um breytingar á búvörulögum hvað varðar framleiðendafélög andstæð EES-samningnum, ekki aðeins breytingartillögur meiri hluta atvinnuveganefndar. Í umsögn Samkeppniseftirlitsins um frumvarp til laga um breytingar á búvörulögum í samráðsgátt árið 2022 segir að eftirlitið telji þá undanþágu sem lögð var til í frumvarpsdrögum mögulega fara gegn ákvæðum EES-samningsins auk þess sem eftirlitið telji að hún gangi lengra en tíðkast í nágrannalöndum. Frumvarpið var ekki lagt fram.
Óljóst er hvers vegna atvinnuvegaráðherra bíður ekki niðurstöðu Hæstaréttar í málinu sem hér er undir. Þá má spyrja hvers vegna lögin eru færð til fyrra horfs og framleiðendafélög fjarlægð úr lögunum með þessum hætti í stað þess að lagt sé fram það frumvarp sem boðað er í greinargerð nú. Með öðrum orðum, óljóst er hvers vegna ráðherra leggur ekki til þær breytingar sem hann telur nauðsynlegar í stað þess að færa lögin á byrjunarreit í millitíðinni. Auðvelt væri að leggja til breytingar nú í takti við upphaflegt frumvarp matvælaráðherra frá árinu 2023 og í sambandi við þetta vakna spurningar um hvort ríkisstjórnin sé alfarið mótfallin framleiðendafélögum en ekki einungis undanþágu þeirra frá samkeppnislögum.
Aðeins að tímalínunni í þessu máli. Þann 6. apríl 2024 þá taka lögin um breytingar á búvörulögum gildi. Í júní, júlí hefur Kaupfélag Skagfirðinga aðgerðir á grundvelli laganna, m.a. með samruna kjötafurðastöðva. 18. nóvember í fyrra fellur dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur um að lögin stangist á við stjórnarskrá þar sem þau hafi ekki hlotið þrjár umræður á Alþingi. Þann 19. nóvember 2024 sendi Samkeppniseftirlitið bréf á kjötafurðastöðvar og samtök þeirra þar sem m.a. er beint til þeirra að stöðva þegar í stað hvers konar aðgerðir eða háttsemi sem stofnast hefur til á grundvelli laganna frá 6. apríl 2024. Á þessu ári, 2025, 18. febrúar, þá leggur hæstv. atvinnuvegaráðherra fram frumvarp um afnám laganna frá 6. apríl 2024 og við væntum þess að eftir um mánuð, í apríl komandi, muni Hæstiréttur fella dóm sinn.
Ég vil koma aðeins að vandkvæðum við frumvarp atvinnuvegaráðherra. Ef frumvarpið er samþykkt áður en dómurinn fellur þá vitum við ekki hver áhrif þess verða fyrr en dómurinn fellur. Ef Hæstiréttur staðfestir dóm héraðsdóms um að lögin frá 6. apríl 2024 séu ógild þá hafa lögin í raun enga þýðingu. Þá er bara verið að fella brott lög sem voru þegar ógild samkvæmt ákvörðun dómstóla. Lögin höfðu því engin réttaráhrif, þetta væri þá bara tiltekt í lagasafninu. Ef Hæstiréttur snýr við dómi héraðsdóms og niðurstaðan sú að lögin voru allan tímann í gildi þá hafa lögin afdrifarík réttaráhrif. Þá hefðu umræddir samrunar átt rétt á sér og hefðu getað átt sér stað frá 19. nóvember til gildistöku lagafrumvarpsins sem atvinnuvegaráðherra lagði fram. En ef lögunum verður breytt áður en dómurinn fellur eru umrædd fyrirtæki svipt þeim rétti sem þau sannarlega höfðu frá 19. nóvember til þessa dags er frumvarp atvinnuvegaráðherra tekur gildi. Fyrirtækin höfðu svo sem rétt samkvæmt lögunum til samruna frá 19. nóvember en var bannað að gera það af Samkeppniseftirlitinu í kjölfar héraðsdóms. Ef Hæstiréttur snýr við héraðsdómi eftir að frumvarp ráðherra er samþykkt þá breytir dómurinn engu fyrir fyrirtækin um heimild til samruna. Þá mun Samkeppniseftirlitið neita þeim sem þá heimild hafa þar sem frumvarp ráðherra væri búið að taka gildi. Hins vegar myndi það baka ríkinu skaðabótaskyldu. Ef Hæstiréttur staðfestir hefur frumvarp ráðherra engin réttaráhrif. Ef Hæstiréttur snýr við héraðsdómi eru fyrirtækin svipt rétti sem þau höfðu og ríkið er skaðabótaskylt.
Mig langaði aðeins að ræða svona almennt það sem hefur komið öðru hvoru fram í dag, um starfsskilyrðin í mjólkurframleiðslunni og gerð þeirra samninga sem unnið var að og undirritaðir voru 2004. Þá var ákveðið að slíta í sundur beinan stuðning ríkisins við framleitt magn mjólkur og allt frá þessum tíma hefur fjárhæð til stuðnings mjólkurframleiðslu verið grundvölluð á fjárhæð frá árinu 2004 og miðað við rúmar 100 milljónir lítra. Núna, 20 árum seinna, er innanlandsþörf metin vera rúmar 150 milljónir lítra. Á þessum tíma hefur fjárhæðin ekki tekið öðrum breytingum en þeim að hún hefur verið framreiknuð, þó með þeim hætti að lengst af hefur 1% raunlækkun verið innifalin. Stuðningur er því 20% lægri að raunvirði. Þetta er ótrúleg breyting. Þetta er sem sagt þessi svokallaði Brúnastaðahalli sem oft hefur verið minnst á. Þetta er raunverulega það sem var verið að eltast við í þessu frumvarpi, að auka hagræði til að gera framleiðsluna hagkvæmari.
Hér má geta þess að engin stétt á Íslandi hefur borið þyngri byrðar af þátttöku í þjóðarsáttinni á sínum tíma sem bændur áttu beina aðild að í febrúar 1990 ásamt vinnumarkaðnum. Það var vitað á þeim tíma, enda var hún gerð með stuðningi bænda. Öllum var ljóst að svo há ríkisútgjöld til landbúnaðar sem voru fyrir 30 árum væru algerlega ósjálfbær og gætu ekki gengið upp. Á þeim tíma, fram að þjóðarsátt, gátu útgjöld til landbúnaðar og niðurgreiðsla á búvöru numið allt að 5–6% af landsframleiðslu. Í dag er þessi tala komin undir 1%. Stuðningur farið úr 5–6% af landsframleiðslu í undir 1%. Það hafa orðið gríðarlegar breytingar hér í landinu sem snúa að þessu, mikill viðsnúningur. Það mál sem við ræðum hér, þess vegna vildi ég koma inn á þetta, er angi af þessum ótrúlegu breytingum sem hafa orðið. Búvörulögin sem samþykkt voru í fyrra eru hluti af þessu ferli, þ.e. að gera íslenskan landbúnað samkeppnishæfari, gera honum mögulegt að keppa við erlendar niðurgreiddar landbúnaðarvörur. Um það snýst málið. Með nákvæmlega sama hætti var tekist á við þetta í mjólkurframleiðslu 2004.
Þessar undanþágur eru við lýði í öllum nágrannalöndunum og það liggur fyrir að íslenskir bændur og fyrirtæki þeirra, afurðastöðvar þeirra, hafa búið við mun lakari rekstrarskilyrði og þrengri samkeppnislöggjöf en bændur og fyrirtæki t.d. í Noregi og sama staða er innan aðildarríkja Evrópusambandsins. Þegar frumvarpið var samþykkt fyrir ári síðan, í mars 2024, var þessi staða jöfnuð að þessu leyti.
Það hefur komið fram í þessari umræðu í dag að það er óljóst hvernig hæstv. atvinnuvegaráðherra, ríkisstjórn og meiri hlutinn ætla að koma til móts við það sem hér er lagt til að verði fellt út. Það er ekki komin nein niðurstaða um hvernig eigi að leysa málið. Við bíðum eftir hæstaréttardómi, við bíðum eftir einhverri framlengingu á plaggi í haust, eftir hálft ár í það minnsta, það getur komið niðurstaða kannski fyrir jól. Það sjá það allir að þetta er einhver endaleysa, það er ekki verið að taka rétta tímalínu í málinu, það er ekki verið að fara í málið í einhverju heildarsamhengi. Bara það að bíða eftir hæstaréttardómnum og við hér í þinglegri meðferð erum í raun og veru að bíða eftir þeirri niðurstöðu og erum með málið inni í atvinnuveganefnd — það er svolítið áhugavert. Við erum öll að bíða eftir dómi sem kemur eftir fjórar, fimm vikur.
Það sem er lykilatriði hér og við þurfum að hafa í huga, er: Ætlum við að koma því þannig fyrir að íslenskum landbúnaði sé ætlað að keppa með hendur bundnar fyrir aftan bak eða ætlum við að búa til umhverfi sem eitthvert réttlæti er í og láta sömu forsendur gilda hér á landi eins og annars staðar í Evrópu?
Það má alveg taka þetta enn þá lengra. Með því að fella þetta einhliða niður með þessum hætti og vera ekki komin með neinar niðurstöður um hvernig eigi að leysa málin í staðinn, er ríkisstjórnin að staðfesta stefnu sína um að henni sé meira umhugað um hagsmuni erlendra bænda og innlendra heildsala. Þetta er bara hin einfalda mynd sem við erum að fást við.
Við höfum rætt hér í þinginu undanfarnar vikur töluvert um fæðuöryggi og hversu stór þáttur það er orðið í dag. Það hafa orðið miklar breytingar í þeirri umræðu. Hver einasta þjóð í Evrópu og í hinum vestræna heimi og hvert sem litið er leggur gríðarlega áherslu á í dag að tryggja sitt eigið fæðuöryggi. Það skilja allar þjóðir, sérstaklega á þeim tímum sem við upplifum þessa dagana. Það er mikilvægt að sá skilningur sé líka til staðar hjá íslenskum stjórnvöldum.
Hér er um að ræða gríðarlega stórt byggðamál fyrir byggðirnar og sérstaklega í hinum dreifbýlu sveitum. Það er bara þannig að ég veit ekki hvernig það hefði farið allt saman á undanförum árum ef ferðaþjónustan hefði ekki komið til víða. Bara í mínu kjördæmi eru gríðarlegir hagsmunir af þessu máli og því sem við erum að fást við hér, það hleypur á tugum milljarða í stóra samhengi hlutanna. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að við tökumst á við þetta af réttlæti (Forseti hringir.) og einhverri yfirvegun og að heildarmyndin sé skýr, hvernig við ættum að fara með þessi mál á næstu árum og áratugum (Forseti hringir.) þannig að við tryggjum innlenda matvælaframleiðslu í landinu.