búvörulög.
Frú forseti. Þannig að nú snýst þetta ekki lengur um ólög vegna héraðsdómsins eða það samhengi, nú eru þetta bara almenn ólög sem við erum að fást við hér. Ég reyndi aðeins að útskýra það þegar ég byrjaði mína ræðu hérna áðan og benti á að í Horsens á Jótlandi, þar sem margir Íslendingar sækja nám og eiga margir góð tengsl við, að þar væri hægt að slátra öllum grísum á Íslandi, allri svínaframleiðslu á Íslandi á fjórum dögum, 80.000 grísum. Þetta er bara fínt dæmi um það hvað við erum að fást við. Litla Ísland með sína 400.000 íbúa er ekki að fara að keppa við þessi stærstu og stóru fyrirtæki um allan heim. Það er ekkert Evrópuríki með það sem menn halda að sé bara opinn markaður fyrir landbúnaðarvörur.
Sá sem hér stendur heimsótti Addis Ababa með NATO-þinginu, ætli það hafi ekki verið í september 2018. Við hittum t.d. Afríkusambandið, fulltrúa þess, þessara 52 landa Afríku. Þau töluðu um Evrópusambandið, sem við þekkjum sum náttúrlega, sem eitt mesta tollabandalag heims. Þau geta ekkert flutt sínar afurðir og matvælaframleiðslu með óheftum hætti til Evrópu. Þau kvörtuðu mjög. Evrópusambandið passar sitt. Öll lönd Evrópu eru að passa sína matvælaframleiðslu. Við erum að mörgu leyti með opnari löggjöf sem snýr að innflutningi á matvælum heldur en almennt gerist. Það væri bara áhugavert í tölfræðinni að skoða, eins og ég kom inn á, með stuðning við landbúnað í dag á Íslandi. Hann er nú kominn undir væntanlega 1%, úr 5–6% fyrir 30–35 árum — hvað við erum að fást við. Það er þannig í þessu, og ég hef talað fyrir því að gera eins og við töluðum um varðandi mjólkina árið 2004; það þarf að fara sömu leið í þessu máli fyrir framtíðina, svo við getum (Forseti hringir.) barist fyrir að gera framleiðsluna eins samkeppnishæfa — að íslenskir bændur séu eins samkeppnishæfir og hægt er. Það gerum (Forseti hringir.) við ekki með óheftum innflutningi á kjöti eða öðrum afurðum. (Forseti hringir.) Málið er ekkert flóknara en þetta. Við eigum að gera hlutina svipað og Noregur gerði (Forseti hringir.) og hefur gert og eins og þeir hafa skilgreint EES-löggjöfina. (Forseti hringir.) Við ætlum okkur bara að fara svipaðar leiðir og Norðmenn.
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutíma.)