búvörulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir. Já, ég held að það þurfi ekkert að koma hv. þingmanni á óvart vegna þess að það var nú heldur betur rætt hér í þinginu á sínum tíma. Ég og minn flokkur erum bæði efnislega ósammála því sem var verið að gera með þessari miklu breytingu hér á milli umræðna í þinginu og við vorum líka ósammála vinnubrögðunum. Það er auðvitað bara kjarni málsins. Við erum ekki hrifin af því ástandi að það sé ekkert eftirlit með mögulegum samrunum eða einhverri skiptingu markaða eða öllu því sem Samkeppniseftirlitið er alla jafna að skoða vegna þess að það er bara ofureinfaldlega þannig að það eru ekkert allir sem virða allar eðlilegar leikreglur í því. Dæmin sanna það út frá bara fjölmörgum samkeppnisbrotum sem hefur verið upplýst um í gegnum tíðina. Traust er ekki nóg. Það þurfa að vera ákveðnar leikreglur í gangi. Það er ákvæði í samkeppnislögunum sem heimilar þetta allt saman sem verið er að tala um en bara undir eftirliti Samkeppniseftirlitsins. Þá lagagrein hafa menn ekki viljað nýta sér í miklum mæli vegna þess að þá hafa menn þurft að afhenda alls konar gögn sem mér skilst að hafi verið svolítið djúpt á. Það er nú kannski svolítið kjarni málsins.
Ég átta mig á því að þetta getur oft verið snúið með innflutninginn en mig langar að benda á eitt sem er þó samofið þessari stöðu sem núna er, þ.e. að það eru ekki bara einhver heildsalafyrirtæki úti í bæ sem eru að flytja inn landbúnaðarafurðir, það eru afurðastöðvar að gera líka og eigendur afurðastöðva. Þá erum við með þá stöðu að sumir sem flytja inn eru bundnir samkeppnislögum og geta fengið fangelsisdóm fyrir að gera tiltekna hluti á meðan aðrir eru ekki í þeirri stöðu. Það er auðvitað bara mjög óeðlilegt og ég hefði haldið að þingmaður, sem kemur úr Sjálfstæðisflokknum, flokki sem kallar sig hægri flokk á tyllidögum en talar stundum bara gegn heilbrigðri samkeppni, ætti að skilja nokkuð vel. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann: Hvað segir hann um þessa skökku stöðu þegar kemur að innflutningi eins og ég var að rekja hér?