búvörulög.
Frú forseti. Ég náði ekki alveg spurningunni í lokin. Ég vil kannski benda á það hversu dapurt þetta hefur verið hérna síðustu árin og hefur tekið langan tíma einmitt varðandi innflutninginn og tollnúmerin, eins og í kjöti. Hér er bara verið að flytja hægri vinstri inn erlendar afurðir, dýrar filet-steikur sem hakkefni eða hvað það er. Þannig að það hefur líka verið bent á það í mörg ár að það þarf virkilega passa upp á þetta. Landamærin í þessu skipta gríðarlegu máli þannig að það sé á hreinu hvað er verið að flytja inn í landið hverju sinni. Þetta hefur náttúrlega haft gríðarleg áhrif á markaðinn, þessir hlutir, þannig að það er bara fínt að hafa tækifæri til að koma inn á þetta með tollnúmerin. Það er kannski stærsta spurningin í þessu máli: Af hverju þessi asi? Af hverju erum við að standa í þessu á þessum tímapunkti? Hæstaréttardómurinn að koma, myndin skýrist og svo getum við hér í þinginu farið að vinna, hvort sem er í atvinnunefnd eða hér í þessum þingsal, í málinu með kannski einhverjum eðlilegri hætti. Þetta er svolítið sérstakt umhverfi í kringum þetta mál núna. Ég er þeirrar skoðunar almennt, þó að ég sé mikið fyrir samkeppni og telji að hún hafi skapað og gert gríðarlega mikið og ekki er ég hrifin af því sem er að gerast núna í tollastríðinu sem er að verða til, að það gildi bara allt önnur lögmál sem snúa að landbúnaði og landbúnaðarvörum. Það er bara þekkt um allan heim hvað við erum að fást við þar. Það eru öll lönd og hinn vestræni heimur, það eru allir að passa og verja sína landbúnaðarframleiðslu. Við göngum kannski einna lengst í því að gera það ekki eins og við höfum unnið hér á undanförnum árum.