156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[16:09]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Ég held það sé ekki víða í íslensku samfélagi þar sem hægt væri að draga mikið úr samkeppni, a.m.k. á fjármálamörkuðum, hjá tryggingafélögunum, í flutningsstarfsemi og þess háttar, en þetta er dæmi um í hversu smáu og litlu samfélagi við búum í. Varðandi það hvernig landbúnaður hefur virkað, hvernig mjólkurframleiðslan hefur virkað í landinu þá er þetta staðan: Fyrir svona 30–35 árum — kannski fæ ég eitthvert vink frá þeim sem muna tölurnar — voru 1.300–1.400 mjólkurbú í landinu. Ætli meðalbú í Eyjafirðinum hafi ekki verið með svona 80.000 lítra. Í dag eru mjólkurbú í Eyjafirðinum með 400.000 lítra að meðaltali. Meðalmjólkurbúið, þetta eru 75, 80 bú, er með svona 400.000 lítra. Þetta er gríðarleg breyting. Þessi 1.300–1.400 bú fyrir 30–35 árum í landinu eru orðin svona 470, 480. Þetta er sú grundvallarbreyting sem við sjáum en erfiðara er í sauðfénu að takast á við þetta með þessum hætti. Það hefur verið gríðarleg hagræðing. Ég fór í gegnum Brúnastaðahallann, þetta 1% og dæmið frá 2004. Þar hafa orðið gríðarlegar breytingar og er gríðarlegt hagræði fyrir íslenskt samfélag hvernig þetta hefur gengið eftir. Það eru ekki allir kátir og alltaf má gera betur en þar hefur orðið gríðarleg breyting. Það er það sem við erum að kalla eftir og það er niðurstaðan sem við þurfum að fá úr þessu: Hvernig við bætum samkeppnishæfni íslensks landbúnaðar, eins og í sauðfénu, og þá kannski að það fari fram með sama hætti og í mjólkinni. Þetta er hin stóra mynd sem við erum að fást við. Þetta er það sem skiptir máli, kjarni málsins. Það þýðir ekki að vera alltaf í útópíu með samkeppni (Forseti hringir.) í samfélagi eins og okkar. Smæðin er slík að það er erfitt að tala fyrir öllu þar. (Forseti hringir.) Ég vildi bara koma inn á mjólkina (Forseti hringir.) og hversu gríðarleg breyting hefur orðið. Þetta er það sem við erum að eiga við og það sem þarf að styrkja til lengri framtíðar.