búvörulög.
Virðulegi forseti. Af því að mjólkin hefur komið til tals í máli hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar þá langar mig að spyrja um útfærsluna, hvernig hann sér þetta fyrir sér. Nú er það verðlagsnefnd búvara sem fjallar um verðmyndun og verð til bænda á mjólk. Í þessum hluta hefur ekki komið til tals að taka upp slíka leið til að verðmeta verðmæti afurða hjá bændum. Þá er spurningin: Er það tillaga hv. þingmanns að tala um að sú leið sé rétta leiðin, að fastsetja verð á kjöti líkt og er þá gert á mjólkinni?