búvörulög.
Frú forseti. Það er eiginlega ekkert það sem ég var að tala um. Ég var bara að tala um að við þurfum að ná þeirri hagræðingu sem best er hægt að ná, eins og við höfum náð miklum árangri í mjólkinni og kúabúunum og þeirri framleiðslu sem þar er, í aðra markaði. Ég er ekkert að segja að verðlagsnefnd búvara eigi að koma inn með þessum hætti beint. Ég er bara að segja: Þetta er stóra myndin sem við erum að fást við í þessu máli, það er bara að auka þessa samkeppnishæfni íslenskra búvara. Ég held að það séu allir sammála því, flestir Íslendingar, að við eigum frábærar afurðir. Atriði sem við erum að fást við núna inni í velferðarnefnd, sýklalyfjaónæmi — við notum lítið af sýklalyfjum í íslenska bústofninum. Ég held að það sé sirka 1/100 af því sem er gert við Miðjarðarhafið, að það sé svona tölfræðin. Þótt það sé ekki endilega búið að sanna að þetta hafi mikil áhrif á mannskepnuna er þetta svona dæmi um hvað við erum að fást við. Við notum mjög lítið af lyfjum í íslensku framleiðslunni. Það er bara svo margt. Við erum mjög sértæk en líka í stóru myndinni sem ég kom aðeins inn á áðan — þess vegna vildi ég líka benda á þessa breytingu sem er orðin þegar við erum með stuðning við íslenska bændur upp á 5–6% fyrir 30–35 árum og það er komið undir 1% í dag. Þetta er ekki sérstaklega íþyngjandi fyrir rekstur ríkisins og þetta hefur svo gríðarleg áhrif vítt og breitt um landið. Þessum peningum er að mínu mati vel varið í að halda hér uppi dreifðum byggðum og sem öflugastri byggð vítt og breitt. Ég veit hins vegar bara — eins og í mínu kjördæmi, Norðaustur, fyrir einhverjum árum síðan þá var gerð rannsókn á þessu og bara á norðausturhorninu, eða sem sagt í Eyjafirði (Forseti hringir.) og austur um Þingeyjarsýslurnar, var veltan bara hjá bændum og afurðastöðvunum eitthvað í kringum 30 milljarðar. Þetta er fyrir fimm, sex árum síðan. (Forseti hringir.) Þannig að þetta er stór og mikilvæg atvinnugrein.