156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[16:31]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ágætu ræðu og sömuleiðis fyrir það að rifja hér upp í töluvert löngu máli áhyggjur utanaðkomandi aðila sem við ræddum svo sem hér á fyrri stigum. Hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu það sem tæki við af því frumvarpi sem hann vill nefna ólög, ég er svo sem ekki sammála honum í því, og minntist á það reglulega að þetta væri svona hliðstætt því frumvarpi sem síðasta ríkisstjórn lagði fram. Þá er spurning mín til hv. þingmanns: Hvernig á það frumvarp, ef það á að bera keim af því sem hæstv. fyrrverandi matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, lagði fram, að ná til sauðfjárbænda og nautgripabænda? Því að eins og það var upphaflega á sínum tíma þá var kveðið á um 51% eignarhluta að lágmarki í eigu bænda. Og vitandi það að það eru einungis þrjú fyrirtæki hér á landi sem ekki framleiða dilkakjöt eða nautakjöt, hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að hið nýja frumvarp, tilvonandi, líti út og hvernig á að ná utan um þetta ef það á að bera ansi mikinn keim af því sem atvinnuveganefnd breytti hér á síðasta þingi?