búvörulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta. Hv. Þórarinn Ingi Pétursson hefur oft átt orðastað við mig um þessa hluti og við erum auðvitað ekkert sammála og það er bara alveg í fínu lagi. Ég veit auðvitað ekki nákvæmlega hvernig frumvarpið mun líta út og við skulum kannski ekki fara að oftúlka orð mín eitthvað of mikið varðandi það, en við verðum nær því ástandi sem var þegar hæstv. fyrrverandi ráðherra lagði fram málið heldur en við erum núna. Það er kannski það sem ég er að reyna að segja. Aðalatriðið er að ef menn ætla að fara í einhverjar miklar æfingar, líkt og var verið að reyna á síðasta kjörtímabili og héraðsdómur hefur dæmt ólögmætt, þá viljum við að mál verði lagt fram sem getur tekið einhverjum breytingum og tekið mið af umsögnum bænda, umsögnum Neytendasamtakanna og allra hagaðila, mögulega til þess að snikka það til og sníða, þó þannig að það standist allar þær reglur sem við gerum til vinnubragða hérna í þinginu. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig það á að líta út og ég ætla ekki að fara að segja eitthvað til um efnisatriði frumvarps sem ekki er komið fram. En ég geri satt best að segja ekkert sérstaklega mikið úr því þegar menn eru að tala um að það ríki alltaf svo mikil óvissa þegar við erum að tala um höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar. Það er alltaf verið að breyta lögum og umhverfi sjávarútvegs að einhverju leyti, ferðaþjónustu að einhverju leyti. Við erum að fjalla hér um skatta og gjöld á hverjum einasta vetri. Það er alltaf verið að taka einhverjar ákvarðanir sem hafa áhrif á atvinnugreinar. Það er ekki einhver rosaleg óvissa uppi sem býr til einhverja slíka neyð að menn geti talað um það. Þannig að bara enn og aftur; við erum auðvitað að fella úr gildi þessi ólög sem samþykkt voru hér, algjörlega óháð því hvað Hæstiréttur gerir, einfaldlega vegna þess að efnislega teljum við að þær breytingar gangi gegn hagsmunum neytenda og bænda.